Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Þarftu að klaka út hugmynd? - Fréttir

14.7.2010

Þarftu að klaka út hugmynd?

Atvinnumál kvenna tók hús á Klakinu sem er nýsköpunarhús sem aðstoðar frumkvöðla við að búa til fyrirtæki.  Þar hafa mörg  nýsköpunarfyrirtæki tekið sín fyrstu skref og fengið aðstoð og ráðgjöf í framhaldinu. Eyþór Ívar Jónsson stýrir verkefninu og við forvitnuðumst um hann og þau verkefni sem unnið er að hjá Klakinu.

Eyþór Ívar Jónsson -  hver er maðurinn?

Ég er mikill áhugamaður og sennilega líka fagmaður í verðmætasköpun. Alla tíð hef ég unnið sem frumkvöðull, unnið með frumkvöðlum sem ráðgjafi og svo hef rannsakað og skrifað mikið um verðmætasköpun. Ég hef lengst af unnið erlendis og er enn með stöðu mína við Viðskiptaháskólann (CBS) í Kaupmannahöfn þar sem ég hef kennt í MBA náminu hjá þeim í fimm ár. Ég hef jafnframt búið til mikið af því sem þeir gera í nýsköpun og frumkvöðlafræðum og unnið fyrir aðra háskóla á Öresund-svæðinu eins og t.d. Háskólann í Lundi. Síðan er ég rómantíker eins og Sam í Hringadróttinssögu en bara með fallegri fætur.

Hvaða starfsemi fer fram hjá Klakinu?

Við höfum í gegnum tíðina hjálpað mörgum fyrirtækjum að komast á svokallað vaxtarstig þar sem markmiðið er að ná fyrirtækinu yfir milljarð í veltu. Við hjálpum einnig frumkvöðlum með metnað að búa til fyrirtæki. Við hjálpum þeim að byggja fyrirtækið upp og hjálpum þeim að skapa tengslanetið sem getur flýtt fyrir uppbyggingarferlinu. Við höfum fengið til okkar frumkvöðla sem hafa verið týndir í hugmyndum sínum og jafnvel frumkvöðla sem hafa haft mjög óljósar hugmyndir og við höfum hjálpað þeim að móta hugmyndina og gera hana að fyrirtæki. Ég hef stundum sagt að Klakið er eins og Sam í Hringadróttarsögu, besti vinur aðal -  þ.e. Fróða - sem hjálpar honum að gera það sem hann hefur metnað og ástríðu til þess að gera. 

Hvernig varð klakið til?  

Klak - Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins (www.klak.is) var stofnað fyrir tíu árum af frumkvæði Nýherja hf. Hugmyndin var að reyna að fjölga hátæknifyrirtækjum sem gætu nýtt sér internetið til þess að búa til markað og viðskiptamódel. Flest þau sprotafyrirtæki sem við þekkjum í dag hafa með einum eða öðrum hætti notið aðstoðar Klaksins. Árið 2004 stofnaði Klakið ásamt öðrum hagsmunaaðilum sprotafyrirtækja eins  og t.d. Samtökum iðnaðarins, Eyrir Investment, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Nýsköpunarsjóð Íslands og fleiri aðilum Sprotaþing Íslands. Sprotaþing Íslands (www.seedforum.is) er hagsmunasamtök sem miða að því að tengja saman frumkvöðla og fjárfesta. Við keyrum m.a. Seed Forum Iceland ráðstefnuna tvisvar á ári í þeim tilgangi.

Hvaða starfsemi fer fram á ykkar vegum ?

Það sem við höfum lagt mesta áherslu á síðustu misserin er að byggja upp farveg fyrir frumkvöðla og vaxtarfyrirtæki sem við köllum Viðskiptasmiðjuna - Hraðbraut nýrra fyrirtækja. Þarna hafa fyrirtæki eins og Trackwell, AGS, Hafmynd, Stjörnu-Oddi, Clara og Gogoyoko, Remake - Electric og fullt af nýjum fyrirtækjum orðið til. Við lítum á okkur sem miðpunkt tengslanetsins fyrir frumkvöðla og miðstöð þekkingarsköpun frumkvöðla og sprotafyrirtækja. Við gerum mikið af rannsóknum og hjálpum frumkvöðlum t.d. að búa til viðskiptaáætlanir, sækja um styrki, gera samninga og finna starfsmenn. Einnig eru um fjörutíu fyrirtæki með aðstöðu í húsakynnum Klaksins en við erum með u.þ.b. 2.000 fm húsnæði í Kringlunni 1 og Ofanleiti 2. Við rekum svo alls konar keppnir og atburði til þess að hvetja frumkvöðla og vekja athygli á mikilvægi nýsköpunar, nýrra fyrirtækja og verðmætasköpunar í endurreisn Íslands.

Hvað er "Iceland Angels"?

Við höfum í nokkur ár talað mikið fyrir því að skapa grundvöll fyrir viðskiptaengla á Íslandi. Viðskiptaenglar eru fjárfestar sem fjárfesta í sprotafyrirtækjum fyrir nokkrar milljónir upp í allt að nokkra tugi milljóna. Iceland Angels er samstarfsvettvangur viðskiptaengla þar sem Klakið veitir þeim upplýsingar um áhugaverð fjárfestingartækifæri, hjálpar þeim að meta þau og kemur á fyrstu fundum á milli fjárfesta og frumkvöðla. Viðskiptasmiðjan er jafnframt frábær farvegur sem viðskiptaenglar geta notað til þess að hjálpa sér við að byggju upp sprotafyrirtækin hratt og vel. Þannig að ef þú þekking viðskiptaengla þá áttu endilega að koma þeim í samband við Klakið vegna þess að við hjálpum þeim að gera erfiðu og leiðinlegu hlutina og gerum þannig fjárfestingar í sprotafyrirtækjum miklu skemmtilegri og miklu líklegri til árangurs en ella.

Hvernig fer námið hjá Viðskiptasmiðjunni fram?

Viðskiptasmiðjan - Hraðbraut nýrra fyrirtækja er líka nám að því leyti að við viljum ekki bara vera ráðgjafar sem segja frumkvöðlum hvað þeir eiga að gera, við erum fyrst og fremst að þjálfa þá til þess að taka góðar ákvarðanir sjálfir. Við viljum ekki veiða fyrir frumkvöðla heldur hjálpa þeim að læra að veiða og búa svo til gómsæta vermætasköpun úr veiðinni. Við erum viðskiptanám á háskólastigi sem býður upp á um 60 námskeið á ári og bjóðum Viðskiptasmiðjuna sem 90 eininga háskólanám. Þetta eru allt námskeið sem eru sérsaumuð að frumkvöðlum og öll verkefnin snúast um eigið fyrirtæki frumkvöðulsins þannig að frumkvöðlar hafa mikinn ávinning og hvata til þess að gera verkefnin. Þau snúast um að hjálpa þeim að búa til árangursríkt fyrirtæki. Auðvitað eru ekki allir sem koma í Viðskiptasmiðjuna að taka þetta eins og háksólanám vegna þess að þessi farvegur snýst fyrst og fremst að búa til fyrirtæki eða að flýta vaxtarferli fyrirtækja verulega. 

Hvað er framundan hjá Klakinu?

Haustönn Viðskiptasmiðjunnar byrjar núna í september með miklum látum og það stefnir í að það verði mikið af áhugaverðum fyrirtækjum og frumkvöðlum í Viðskiptasmiðjunni núna í haust. Það er hægt að sækja um haustönnina fram til 15. ágúst. Við erum með ráðstefnu fyrir fyrirtæki í hreinni orkunýtingu 18. September, Seed forum Iceland 8. október og svo fullt að skemmtilegum atburðum sem tengjast Klak og Viðskiptasmiðjunni. 

Eitthvað að lokum?

Endilega að skrá sig í Viðskiptasmiðjuna og prófa að þróa og skapa fyrirtæki. Það á enginn að fara í gegnum lífið án þess að athuga hvort það sé ekki fótur fyrir því að vera atvinnurekandi frekari en launþegi. Íslands þarf á því að halda að það verði til fleiri fyrirtæki sem eiga alþjóðlegan heimamarkað. Klak er með farveginn, þekkinguna og tengslanetið til þess að flýta ferlinu verulega.   

Nánari upplýsingar um námið veita Eyþór Ívar Jónsson eythor@klak.is og María Þorgeirsdóttir maria@klak.is


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ekkert hamlar jafn mikið góðum samskiptum þínum við annað fólk, eins og ósætti við sjálfan þig. - Honore De Balzac

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk