Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Afmćlisráđstefna Jafnréttisstofu - Fréttir

6.9.2010

Afmćlisráđstefna Jafnréttisstofu

Jafnréttisstofa, sem staðsett er á Akureyri, verður 10 ára þann 10 september. Af því tilefni er blásið til afmælisráðstefnu í Ketilhúsinu á Akureyri þann sama dag kl. 13.15-16.30. Ráðstefnan er haldin í tengslum við árlegan landsfund jafnréttisnefnda sveitarfélaga sem verður á Akureyri 10.-11.september,
Dagskráin samanstendur af stuttum ávörpum og erindum af ýmsu tagi og munu Kristjana Arngrímsdóttir og Kristján Hjartarson sjá um tónlistarflutning.

Dagskráin er svohljóðandi:

13.15 - Tónlist - Kristjana Arngrímsdóttir og Kristján Hjartarson
13.25 - Ávarp Félags- og tryggingamálaráðherra
13.35 - Horft um öxl og fram á við - Valgerður Bjarnadóttir, fyrsta framkvæmdastýra Jafnréttisráðs
13.45 - Erindi - Þórhildur Þorleifsdóttir, leikstjóri og formaður Jafnréttisráðs
14.05 - Horft um öxl og fram á við - Margrét María Sigurðardóttir, önnur framkvæmdastýra Jafnréttisstofu
14.15 - Erindi - Brynhildur Flóvents dósent í lögfræði við Háskóla Íslands
14.35 - Erindi - Björn Þorláksson, rithöfundur og bæjarlistamaður Akureyrar
14.55 - Erindi - Gyða Margrét Pétursdóttir, kynjafræðingur
15.15 - Kaffi og tónlist
15.30 - Horft um öxl og fram á við: Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra
15.40 - Pallborðsumræður - þátttakendur verða Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra, Þorbjörg Inga Jónsdóttir, varaformaður fjölskyldunefndar Mosfellsbæjar og fyrrverandi formaður KRFÍ, Katrín Anna Guðmundsdóttir, verkefnastýra og jafnréttishönnuður, Birkir Jón Jónsson, alþingismaður og Hörður Vilberg frá Samtökum atvinnulífsins.
16.30 - Ráðstefnulok
17.00-18.00 - Móttaka í Hofi, nýja Menningarhúsinu á Akureyri

Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur ókeypis en þátttakendur eru beðnir um að skrá sig í netfangið jafnretti@jafnretti.is


 


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ekkert hamlar jafn mikið góðum samskiptum þínum við annað fólk, eins og ósætti við sjálfan þig. - Honore De Balzac

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk