Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Lífsvefurinn - sjálfsstyrking kvenna í starfi og einkalífi - Fréttir

14.9.2010

Lífsvefurinn - sjálfsstyrking kvenna í starfi og einkalífi

Lífsvefurinn er námskeið fyrir konur sem vilja læra að þekkja sjálfar sig betur og ná að vefa hinn margþætta vef lífsins á markvissan hátt. Nú stendur yfir skráning á námskeið er hefst þann 16. september á Akureyri. Námskeiðið er 20 stundir og er kennt á fimmtudögum frá kl. 8.30-12.30.  Þetta námskeið er sérstaklega fyrir konur er starfa að heilbrigðis- félags og menntamálum og er hægt að skrá sig með því að senda tölvupóst á netfangið vanadis@vanadis.is eða í síma 895-3319.

Um Lífsvefinn

Námskeiðið er unnið og þróað af Karólínu Stefánsdóttur og Valgerði H. Bjarnadóttur, sem báðar eru félagsráðgjafar að mennt og hafa starfað í áratugi með konum í einstaklingsráðgjöf og hópum. Karólína er fjölskylduráðgjafi og hefur síðustu áratugi starfað á Heilsugæslustöðinni á Akureyri. Konur á öllum aldri, víða um heim hafa sótt námskeiðið síðan 1992 og það er ein aðaluppistaðan í náminu í Menntasmiðju kvenna. Undanfarin ár hefur Valgerður sinnt kennslunni að mestu.

jamandorlaMandorla Of The Spinning Goddess (1982) : Judith Anderson

Helstu efnisþættir námskeiðsins eru: sjálfsþekking og samskipti; saga, hlutverk og staða kvenna; heilsa kvenna og tilfinningar; draumar og goðsagnir; fyrirmyndir og fordómar.

Helstu markmiðin eru að: læra að þekkja og virða sjálfa sig; læra að greina og vinna úr því sem er erfitt og setja sér raunhæf markmið; læra leiðir til betri samskipta; styrkja jákvæða kvenímynd/sjálfsmynd sína; og þekkja sögu sína, lífsgildi, lífstilgang, rétt sinn og skyldur.

Undanfarið hefur Lífsvefurinn verið í boði á Akureyri og víða um landið, bæði 20 klst. grunnnámskeið og 40 klst framhald. Framhaldið er ekki síst fyrir konur sem geta nýtt námið í störfum sínum, unnið er nánar með samskipti, sjálfsstyrk og sjálfsmynd m.a. út frá draumum, goðsögnum og ævintýrum.

Hægt er að bjóða upp á bæði styttri og lengri útgáfur Lífsvefsins, aðlagaðar að ólíkum hópum.


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk