Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Heiður - seið hún kunni - grunnnámskeið fyrir 21 öldina - Fréttir

15.9.2010

Heiður - seið hún kunni - grunnnámskeið fyrir 21 öldina

Seiður eða sjamanismi hefur verið mikill hluti daglegs lífs, menningar og siða kvenna og karla um allan heim frá örófi alda. Enn er sjamanismi lifandi meðal frumbyggja heimsins, í Ástralíu, Ameríku, Asíu, Afríku og á Norðurhjara Evrópu meðal Sama.
Þörfin fyrir að blása lífi í glóðir þessa lífsforms eð að vakna meðal íbúa vestrænna iðn- og markaðsríkja og þá kemur í ljós að það lifir enn í glóðunum. Ef kafað er í menningararfinn finnum við minni seiðsins bæði í keltneskum og norrænum rótum okkar.

Á námskeiðinu Heiður - seið hún kunni, munum við fræðast lítillega um þann sjamanisma sem er lifandi í dag og sögu hans í menningu okkar sjálfra. Aðaláherslan er þó á þau verkefni sem tengja okkur við náttúruna og veruleikann. Við lærum m.a. um heimana þrjá og vættir þeirra, máttardýr og aðrar hamingjur, förum í draumferðir, sköpum og ræðum saman til að blása lífi í minni völvunnar og vitkans sem í okkur býr, vekja seiðinn úr dvala.

Námskeiðið er haldið í nærandi, spennandi og umvefjandi umhverfi Dalsár í Mosfellsdal.

Tímar; 20. og 27. september og 11. og 12. október kl. 18.00-22.00 alls 16 klst. Verð kr. 25.000. Skráning og nánari upplýsingar í síma 895-3319 og í vanadis@vanadis.is


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk