Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Um 22 þúsund frumkvöðlar á Íslandi - Fréttir

16.9.2010

Um 22 þúsund frumkvöðlar á Íslandi

11,4% Íslendinga á aldrinum 18-64 ára, eða um 22 þúsund manns, taka þátt í frumkvöðlastarfsemi. Þetta er hæsta hlutfall frumkvöðla í þeim hagkerfum sem við berum okkur saman við. Þetta eru niðurstöður alþjóðlega rannsóknarsamstarfsins Global Entrepreneurship Monitor (GEM), sem er umfangsmesta samanburðarrannsókn í heimi á frumkvöðlastarfsemi.

Umfang frumkvöðlastarfsemi á Íslandi er mikið, en mismunandi eftir þjóðfélagshópum

Í GEM-rannsókninni er umfang frumkvöðlastarfsemi skilgreint sem hlutfall þeirra einstaklinga sem annaðhvort undirbúa nýja viðskiptastarfsemi eða hafa nýlega stofnað til hennar. Á árinu 2009 mældust 11,4% Íslendinga á aldrinum 18-64 ára, eða um 22 þúsund manns, taka þátt í frumkvöðlastarfsemi. Þetta er hæsta hlutfall í þeim hagkerfum sem við berum okkur saman við, en frumkvöðlastarfsemin er breytileg efir þjóðfélagshópum:

  • Karlar er um tvisvar sinnum líklegri en konur til þess að taka þátt í frumkvöðlastarfsemi.
  • Frumkvöðlar á Íslandi eru eldri en í samanburðarlöndunum.
  • Líkur á því að einstaklingar stundi frumkvöðlastarfsemi aukast með meiri menntun.
  • Dregið hefur úr hlut tekjulægsta þriðjungs einstaklinga í frumkvöðlastarfsemi sem er nú 5%.
  • Lágt hlutfall fyrirtækjaþjónustu í frumkvöðlastarfsemi bendir til minna vægis þekkingariðnaðar.
  • Væntingar frumkvöðla um atvinnu- og nýsköpun eru mestar af öllum samanburðarlöndunum.
  • Menningar- og samfélagslegar venjur helsti styrkur íslenska frumkvöðlaumhverfisins.
  • Skortur á fjármagni helsti veikleiki íslenska frumkvöðlaumhverfisins.

(Tekið af heimasíðu Háskólans í Reykjavík)


Óbreytt umfang frumkvöðlastarfsemi þrátt fyrir kreppu skapar sóknarfæri

Þrátt fyrir að umfang frumkvöðlastarfsemi hafi ekki tekið breytingum í kjölfar efnahagskreppunnar, virðast einkenni og umhverfi hafa breyst nokkuð. Fleiri hætta starfsemi, fleiri stunda nauðsynjadrifna frumkvöðlastarfsemi, háu hlutfalli finnst erfiðara að hefja starfsemi og viðhorf almennings til frumkvöðlastarfsemi hafa versnað. Hugsanlega gætu þessar breytingar haft langtímaáhrif sem enn eiga eftir að koma fram. Nú hlýtur að vera mikilvægara en oft áður að nýta þann styrk sem felst í því frumkvæði sem býr í Íslendingum. Á síðustu árum hafa stjórnvöld unnið ötullega að því að auka stuðning við frumkvöðlastarfsemi og enn felast þar mikilvæg tækifæri. Opinberum aðilum ber að tryggja að þetta frumkvæði fái að njóta sín þjóðinni allri til hagsbóta.

Tækifæri í að auka möguleika þeirra hópa sem mælast með lága þátttöku í frumkvöðlastarfsemi

Hlutfall kvenna og yngri einstaklinga í frumkvöðlastarfsemi er lægra en í samanburðarlöndunum. Á síðustu árum hefur einnig dregið úr hlut tekjulægstu einstaklinganna og gæti sú þróun að hluta til orsakast af efnahagskreppunni. Nokkuð hefur verið gert til að bæta hag einstakra hópa í þjóðfélaginu í frumkvöðlastarfsemi og frekari tækifæri mætti nýta á því sviði til að auka fjölbreytileika nýskapandi starfsemi.

Aukið fjármagn til frumkvöðlastarfsemi - oft þörf en nú nauðsyn

Efnahagsástandið hefur síst dregið úr mati sérfræðinga að stórlega skorti áhættufjárfestingar, framtaksfjármagn, opinberan fjármagnsstuðning og lánsfjármagn almennt. Ýmislegt hefur verið vel gert og má í því sambandi nefna Sprotalögin og stofnun framtakssjóða. En meira þarf ef duga skal og áhættufælni fjárfesta í efnahagskreppunni kemur illa niður á sprotafyrirtækjum þegar síst skyldi. Áskorun til opinbera aðila er að auka aðgang að fjármagni til frumkvöðlastarfsemi, því oft var þörf en nú er nauðsyn.

Global Entrepreneurship Monitor (GEM)

Undanfarin 11 ár hefur frumkvöðlastarfsemi um allan heim verið könnuð í umfangsmikilli samanburðarrannsókn á vegum alþjóðlega rannsóknarsamstarfsins Global Entrepreneurship Monitor (GEM). Frumkvöðlastarfsemi hátt í 50 ólíkra landa hefur þannig verið könnuð árlega á sambærilegan hátt og niðurstöður könnunarinnar birtar í alþjóðlegri skýrslu. Í hverju þátttökulandi er að auki unnin skýrsla þar sem kafað er dýpra í niðurstöður í því landi. Íslenska skýrslan kemur hér út í sjöunda sinn en Háskólinn í Reykjavík hefur borið veg og vanda af GEM -rannsókninni hér á landi frá árinu 2002. Meginmarkmið skýrslunnar fyrir árið 2009 eru fjögur:

  • Að gefa yfirlit yfir frumkvöðlastarfsemi á Íslandi árið 2009, umfang hennar, einkenni og umhverfi.
  • Að bera frumkvöðlastarfsemi á Íslandi árið 2009 saman við undanfarin ár og samanburðarlönd.
  • Að kanna sérstaklega hvaða áhrif efnahagskreppan hefur haft á frumkvöðlastarfsemi.
  • Að birta ábendingar um hvað megi betur fara í umhverfi frumkvöðlastarfsemi á Íslandi.

Tekið af heimasíðu Háskólans í Reykjavík


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk