Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Ánægðir viðskiptavinir hvetja okkur áfram - Fréttir

29.9.2010

Ánægðir viðskiptavinir hvetja okkur áfram

Samráð er eitt af þeim fyrirtækjum sem hlutu styrk frá Atvinnumálum kvenna nú í vor en það hóf starfsemi í mars á þessu ári. Fyrirtækið er staðsett á Akureyri og hefur nýverið fengið aðstöðu í hinu nýja Menningarhúsi Hofi.
Samráð starfar náið með fyrirtækjum og frumkvöðlum að markaðsmálum og hönnun og býður upp á fjölþætta þjónustu á þessum sviðum  sem er sniðin að þörfum hvers og eins.
Þjónustan við frumkvöðla felst meðal annars í því að gera markaðsáætlanir fyrir þá, sjá um að koma þeim á framfæri í fjölmiðlum og að leita að framleiðendum erlendis sem og að finna vænlega markaði fyrir
útflutning.

Okkur langaði að vita meira um fyrirtækið og eigendur þess.  

Hverjar eru konurnar á bak við fyrirtækið?

"Eigendur Samráðs erum við Inga Björk Svavarsdóttir og Fjóla Karlsdóttir og störfum við báðar hjá fyrirtækinu.  Fjóla er viðskiptafræðingur að mennt með áherslu á markaðsmál og alþjóðaviðskipti og starfaði áður við markaðsmál til fjölda ára hjá Sparisjóðunum.  Inga Björk nam ferðamálafræði í HÍ og hefur mikla þekkingu og gott tengslanet á því sviði. "

Til hvaða verkefnis fékkst styrkur?

„Við fengum styrk til að vinna viðskiptaáætlun fyrirtækisins og var það einn af hornsteinum þess í byrjun. Öll vinna síðan þá hefur miðast við viðskiptaáætlunina og er slík vinna nauðsynleg áður en af stað er farið í stofnun á nýju fyrirtæki."

Hvernig kviknaði hugmyndin að fyrirtækinu?

„Hugmyndin hafði verið í þróun hjá Fjólu í um tvö ár áður en að hafist var handa og síðan kemur Inga þar inn í með sína þekkingu á ferðamannaiðnaðinum og reynslu af stjórnun Upplýsingamiðstöðvar á Akureyri.  Saman skapar menntun, reynsla og tengslanet okkar tækifæri til þess að vinna að mismunandi verkefnum fyrir marga aðila".

Hvað veitir ykkur innblástur?

„Kreppan. Nú eru flest fyrirtæki að spara og þá er mun ódýrara að ráða inn ráðgjafa frá Samráði heldur en að ráða inn starfsmann. Við bjóðum fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum áskriftarleiðir þar sem Samráð vinnur sem markaðsdeild fyrirtækjanna og erum við búnar að útfæra þrjár mismunandi leiðir: litli markaðsstjórinn, stóri markaðsstjórinn og markaðsstjórinn þinn. Með áskriftarleiðunum spara fyrirtæki sér launatengd gjöld, veikinda- og sumarfrísgreiðslur, endurmenntunarkostnað og njóta tengsla og reynslu starfsmanna Samráðs af mismunandi verkefnum. Einnig gefst fyrirtækjunum aðgangur að fleiri starfsmönnum þegar á þarf að halda, á tímum herferða og markaðsátaks, og því gerast hlutirnir hraðar en ella. Áskriftaleiðirnar sparar því bæði tíma og kostnað, bæði stórra og lítilla fyrirtækja.
Kreppan skapar einnig mjög gott vaxtaumhverfi fyrir frumkvöðla og höfum við unnið viðskipta- og markaðsáætlanir fyrir þónokkra. Við bjóðum frumkvöðlum upp á fast verð við vinnslu markaðsáætlunar og einnig 6 mánaða áskriftarleið sem miðast við að koma frumkvöðlinum á kortið og skapa sína eigin viðveru á markaði."

Hvernig gekk ykkur að koma hugmyndinni áfram?

„Okkur gekk mjög vel að koma fyrirtækinu á koppinn og fengum strax veigamikil verkefni til að vinna sem við unnum samhliða stofnun Samráðs. Það hefur verið nóg að gera síðan við hófumst handa og höfum við verið að vinna verkefni fyrir aðila og fyrirtæki út um allt land. Við höfum til að mynda verið að markaðssetja Rocky Horror með Leikfélagi Akureyrar, sem hefur verið mjög skemmtilegt verkefni - enda frábært söngleikur og stórglæsilegir leikarar."

Hvað er skemmtilegast og hvað er erfiðast?

„Skemmtilegast er að vinna með mismunandi fólki að mismunandi vörum, þjónustu og hugmyndum og sjá hvað okkar innlegg hefur mikil áhrif á starfsemi annarra fyrirtækja og frumkvöðla.

Erfiðast er að koma sér heim úr vinnunni, það er oft svo skemmtilegt og mikið að gera að það getur verið erfitt að slíta sig frá verkefnum og halda heim á leið í ró og næði. Við vinnum því oft á kvöldin heima við til að klára daginn."

Hvað hvetur ykkur áfram ?

„Það er tvímælalaust ánægja viðskiptavina okkar og þegar vel tekst til gefur það okkur mikið „búst"."

Hvað er framundan hjá fyrirtækinu um þessar mundir?

„Við erum að breyta heimasíðu okkar og stefnum á að fara í markaðsherferð fyrir Samráð til að kynna áskriftarleiðir okkar. Einnig erum við í viðræðum við ráðstefnuþjónustur um samstarf enda gefur staðsetning okkar í Hofi okkur mikið tækifæri við að þjónusta Hof og þá rekstrarþætti sem þar eru."

Eitthvað að lokum?

„Við vetjum alla til þess að láta drauma sína rætast, þótt það sé erfitt og taki oft langan tíma að komast af stað þá ekki gefast upp - þetta hefst að lokum.

Við bjóðum einnig alla velkomna í heimsókn eða að hafa samband í gegnum síma 4612400 eða í gegnum heimasíðu okkar www.samrad.is. Það má líka finna okkur á facebook og hægt að gerast aðdáandi þar.
Einnig bjóðum við upp á frían kynningarfund og því ætti enginn að þurfa að leggja neitt út fyrr en að samkomulagi er komist um verkefni."

Fjóla og Inga Björk í hinu nýja og glæsilega Menningarhúsi Hofi


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk