Veröldin okkar - mömmueldhús opnar ! - Fréttir
14.10.2010
Veröldin okkar - mömmueldhús opnar !
Samvinna verður einnig höfð við Endurhæfingarhúsið Hver , Skagastaði - virknisetur fyrir unga atvinnuleytendur og Rauða kross húsið á Akranesi. M.a. hefur verið skipuð sameiginleg hússtjórn fyrir þessa fjóra staði
Í gegnum starf okkar með fólki af erlendum uppruna höfum við orðið þess áskynja að staða þeirra erlendu kvenna sem ekki eru á vinnumarkaði er mjög slæm. Tengslanet þeirra er lítið og veikbyggt og þegar ekki er um samskipt í gegnum vinnustað að ræða hættir þeim til að einangrast. Slæm efnahagsleg staða kemur í veg fyrir að þær taki þátt í félagslífi utan heimilis. Með því að bjóða konunum að taka þátt í þessu verkefni má rjúfa félagslega einangrun, auk þess sem það aflar þeim reynslu á íslenskum vinnumarkaði og meðmælenda ef þær standa sig vel, sem er mjög mikilvægt á tímum atvinnuleysis.
Í mömmueldhúsinu verður boðið upp á ódýran heimilismat frá öllum heimshornum á góðu verði og er opið frá kl. 12.30 - 21.00 alla daga vikunnar.
Allir eru velkomnir að gleðjast með okkur á föstudaginn kl. 17-19 en Veröldin okkar er staðsett að Kirkjubraut 8 á Akranesi.
Ţess má geta að verkefnið er styrkt af Atvinnurþóunarsjóði kvenna og Evrópuár gegn fátækt og einangrun.








