Heiður - seið hún kunni - námskeið um sjamanisma - Fréttir
19.10.2010
Heiður - seið hún kunni - námskeið um sjamanisma
er sjamanismi lifandi meðal frumbyggja heimsins, í Ástralíu, Ameríku, Asíu, Afríku og á Norðurhjara Evrópu, meðal Sama. Þörfin fyrir að blása lífi í glóðir þessa lífsforms er að vakna meðal íbúa vestrænna iðn- og markaðsríkja og þá kemur í ljós að það lifir enn í glóðunum. Ef kafað er í menningararfinn finnum við minni seiðsins bæði í keltneskum og norrænum rótum okkar.
Á námskeiðinu munum við fræðast lítillega um þann sjamanisma sem er lifandi í dag og sögu hans í menningu okkar sjálfra. Aðaláherslan er þó á verkefni sem tengja okkur við náttúruna og veruleikann. Við lærum m.a. um heimana þrjá og vættir þeirra, máttardýr og aðrar hamingjur, förum í draumferðir, sköpum og ræðum saman til að blása lífi í minni völvunnar og vitkans sem í okkur býr, vekja seiðinn úr dvala.
Námskeiðið er haldið í nærandi, spennandi og umvefjandi umhverfi Dalsár í Mosfellsdal.
Tímar: 23.október kl.10 - 18 og 15. og 29.nóvember kl.18 - 22. Alls 16 klst.
Verð kr. 25.000.-
Skráning og nánari upplýsingar vanadis@vanadis.is og í síma 895 3319
Einnig er hægt að skrá sig og sjá fleira um námskeið Vanadísar á www.vanadis.is
Umsagnir um námskeið Vanadísar
Námskeiðin hennar Valgerðar eru fyrir mér leið til að kynnast sjálfri mér og öðrum í gegnum fornan þekkingarheim sem flestum er að öllu jöfnu lokaður í nútímasamfélagi. Valgerði tekst á sinn einstaka og lifandi hátt að miðla þessari þekkingu af hjartans list og andans auð þannig að hver sem til hennar sækir hlýtur að geta komist að einhverju nýju um sjálfan sig - öðlast meiri sjálfsþekkingu, uppgötvað ný sjónarhorn, séð fleiri möguleika, aðrar leiðir...
Þórný Jóhannsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Námskeiðið var bæði fræðandi og ekki síður skemmtilegt. Ég gat óhrædd skoðað nýjar leiðir því ég fann að ég gat treyst Valgerði, hún kann sitt fag. Ég tel mig mjög heppna að hafa stigið mín fyrstu spor í sjamanisma hjá Valgerði.
Sólveig Jónasdóttir, jógakennari








