Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Lífsvefurinn - sjálfsstyrkingarnám fyrir konur - Fréttir

20.10.2010

Lífsvefurinn - sjálfsstyrkingarnám fyrir konur

Lífsvefurinn er nám fyrir konur sem vilja læra að þekkja sjálfar sig betur og ná að vefa hinn margþætta vef lífsins á markvissan
hátt í einkalífi og starfi.  Þetta nám hentar afar vel fyrir konur sem í störfum sínum styðja við aðrar konur.Námskeiðið verður haldið í Skagafirði haustið 2010 og er leiðbeinandi Valgerður Bjarnadóttir.

Helstu efnisþættir námskeiðsins eru:

sjálfsþekking, sjálfsmynd og samskipti; saga, hlutverk og staða kvenna; heilsa kvenna og tilfinningar; draumar og goðsagnir; fyrirmyndir og fordómar.

Markmiðin eru m.a. að:

læra að þekkja og virða sjálfa sig; læra að greina og vinna úr því sem er erfitt og setja sér raunhæf markmið;  læra leiðir til skapandi samskipta;  styrkja jákvæða kvenímynd/sjálfsmynd sína;  og þekkja sögu sína, lífsgildi, lífstilgang, rétt sinn og skyldur.

Tími fyrir 20 klst grunnnámskeið:

27.okt

17 - 21

 3.nóv

17 - 21

10.nóv

17 - 21

17.nóv

18 - 22

24.nóv

17 - 21

Verð er kr. 30.000. Staðsetning á Sauðárkróki auglýst síðar.

Skráning á nánari upplýsingar í vanadis@vanadis.is eða í síma 895 3319.

Einnig eru frekari upplýsingar um námskeið Vanadísar á www.vanadis.is

Valgerður H.Bjarnadóttir er félagsráðgjafi að mennt, með BA-gráðu í heildrænum fræðum með áherslu á draumafræði og MA í femínískri trúarheimspeki og menningarsögu með áherslu á norræna goðafræði og gyðjumenningu. Hún hefur starfað að málefnum kvenna, kennslu og ráðgjöf í áratugi og hefur fjölþætta reynslu að baki.


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk