Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Kvennafrí ! - Fréttir

25.10.2010

Kvennafrí !

Konur ganga út af vinnustöðum sínum kl.14:25 því þá hafa þær unnið fyrir laununum sínum þann daginn, ef litið er til þess að atvinnutekjur kvenna eru 65.65% af atvinnutekjum karla. Þann 24. október árið 2005 gengu konur út kl. 14.08 en þá voru atvinnutekjur kvenna 64.15% af atvinnutekjum karla.

Í Reykjavík hittast konur á Hallgrímskirkjutorgi kl. 15:00 og ganga niður að Arnarhóli - Hallveig landnámskona mun leiða gönuna.

Einnig eru skipulagðir viðburðir á Egilsstöðum, Akureyri, Ísafirði og Skagafirði einnig verður fundur á Blönduósi 24. október.

Dagskráin er enn leyndarmál, en þó má upplýsa að listakonur í Reykjavík munu vera með uppákomur á hverju götuhorni á gönguleiðinni og göturnar fá nöfn listakvenna sem eru við viðkomandi götu þennan dag.

Dagskráin er helguð baráttu kvenna gegn kynferðis ofbeldi.

Ofbeldi karla gegn konum og börnum er eitt alvarlegasta samfélagsmein samtímans um heim allan. Þrátt fyrir þá hávaðaþögn sem ríkir um þennan djúpstæða samfélagsvanda, birtist hann margs konar móti. Hér á landi er lýsir hann sér m.a. þannig, að ein kona af hverjum þremur sætir grófu kynferðislegu ofbeldi einhvern tímann á lífsleiðinni.

Ţeir dómar sem falla að jafnaði í undirrétti og Hæstarétti eru á hinn bóginn, vart teljandi á fingrum annarrar handar, þó að u.þ.b. 300 konur megi á ári hverju sæta grófu kynferðisofbeldi.

Ţótt margt hafi áunnist á undanförnum 20 árum berjast þolendur enn við djúpstæða fordóma.

Kynbundið ofbeldi er sprottið af sama meiði og annað misrétti sem konur standa frammi. Það hefur að hluta til náð að brjótast upp á yfirborðið sem viðurkenndur vandi. Nægir í því sambandi að nefna misréttið sem viðgengst á vinnumarkaðnum og birtist í kynbundnum launamun og almennt minni framamöguleikum.

Flest bendir til að árangur á einu sviði jafnréttisbaráttunnar sé háður þeim árangri sem næst á öðrum sviðum hennar.

Konur eru hvattar til að mæta og sýna samstöðu !


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk