Alţjóđleg athafnavika hefst í dag ! - Fréttir
15.11.2010
Alţjóđleg athafnavika hefst í dag !
Í dag hefst alþjóðleg athafnavika en hún er haldin í yfir 100 þjóðum víðsvegar um heiminn í fimm heimsálfum. Markmiðið er að hvetja fólk til að tileinka sér frumkvæði, athafnasemi og nýsköpun. Allir þurfa að taka þátt í að virkja hugmyndir sínar og koma þeim á framfæri og í athafnavikunni er tækifærið að gera það. Lausn vandamála felst í athafnasemi og er ætlunin að virkja hugmyndir og láta verkin tala í Alþjóðlegri athafnaviku.
Alþjóðlega athafnavikan árið 2009 heppnaðist mjög vel og er það dæmi um hverju er hægt að áorka með samstilltu átaki.
Markmið Athafnaviku er að frumkvöðlar verði brautryðjendur efnahagslegrar og samfélagslegrar hagsældar um allan heim. Umsjónaraðili Alþjóðlegrar athafnaviku á Íslandi er Innovit, nýsköpunar- og frumkvöðlasetur og eru fjölmargir viðburðir skipulagðir í vikunni.
Upplýsingar um viðburði má finna á heimasíðu verkefnisins http://www.athafnavika.is/








