Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Urawaza ráđ undir rifi hverju !! - Fréttir

26.11.2010

Urawaza ráđ undir rifi hverju !!

Um síðustu jól eignaðist ég bókina URAWAZA eftir Lisu Katayama þar sem er að finna ótal húsráð frá Japan.  Orðið URAWAZA ţýðir leynibragð eða fljótleg leið á japönsku. Hefðin fyrir þessum húsráðum á rætur sínar að rekja til seinni heimsstyrjaldarinnar en eftir hörmungar hennar kom það sér vel að geta nýtt ýmis hagnýt ráð þar sem erfitt að nálgast helstu nauðsynjar til heimilisins.

Ţannig þurftu japanir að finna út hvernig væri hægt að gera meira með minna.  Afleiðingar mátti sjá í ýmiskonar tækniþróun en einnig útsjónarsemi japanskra húsmæðra sem þurftu að spara peninga um leið og þær þurftu að nota það sem fyrir hendi var.

Við skulum ímynda okkur konu í Tókío sem er að elda fyrir fjölskylduna. Það er spínat í matinn og hún veltir því fyrir sér hvað er hægt að gera meira við það en bara sjóða. Getur hún notað soðið í súpu? Nei, það er of beiskt.  En er hægt að þvo sér í framan upp úr því? Kannski virkar það? Eftir viku tilraun er andlit hennar orðið miklu mýkra en eftir sápu svo að nú getur hún sparað sér að kaupa sápu í búðinni.
Japanar eru nefnilega þekktir fyrir sinn frumkvöðlaanda og allar tækninýjungarnar sem koma þaðan bera þess vitni og má segja að þetta sé angi af þeirri hugsun og anda.

Í neytendasamfélaginu í dag er kannski ekki mikil hvatning til að finna upp hluti þar sem við förum í búðina og getum keypt þar allskyns hreinsiefni og vörur til nota á heimilinu. En kannski er kominn tími til að endurskoða það, bæði með tilliti til peninga en ekki síður með tilliti til umhverfismála. Lausnir í URAWAZi eru oftast umhverfisvænar, spara peninga, auka við sköpunargáfuna, færa okkur aðdáun fjölskyldu og vina. Það er semsagt til mikils að vinna !

Í dag upplifum við á Íslandi kreppu og verðum að læra að nýta okkur betur það sem við höfum milli handanna og kannski getum við lært af þessari japönsku hefð.  Auðvitað eru til ótalmörg íslensk húsráð en alltaf má nota ímyndunaraflið og finna meira sem hægt er að nýta.

Hér kemur eitt dæmi um URAWAZA húsráð og mun ég mjatla fleirum inn á vefinn með tíð og tíma.

Um síðustu jól reyndi ég og dóttir mín eitt ráðið sem var við kvefi og flensu. Það var að væta klút með japönsku víni (sem var reyndar ekki til, en við fundum annað sem dugði) og leggja klútinn við hálsinn. Hvers vegna virkar þetta? Í áfengi er vínandi(auðvitað!) og sterkur vínandi hefur áhrif á skinnið og blóðflæðið eykst sem aftur hefur læknandi áhrif á okkur.  Reyndu bara ekki að útskýra hálftómu flöskuna ...

Annað dæmi er ef þú ert með slæmt kvef og þér líður eins og nefið sé fullt af bómul. Þú ert búin að reyna allt, fara í apótekið en ekkert virkar. Taktu blaðlauk, skerðu grænu blöðin af þannig að þú ert með þykku, hvítu rótina. Skerðu hana í tvennt og stingdu henni upp í nefið, andaðu í gegnum laukinn og það mun hreinsa kinnholurnar.
Hversvegna virkar þetta? Laukar eru með amino sýrur sem verða til þess að okkur svíður í augun þegar við skerum lauk niður. Þessar sömu sýrur geta þannig hreinsað kvefið okkar í burtu. Einfalt, ekki satt?

Meira síðar !

Ásdís Guðmundsdóttir


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk