Konukvöld međ englakonum ! - Fréttir
29.11.2010
Konukvöld međ englakonum !
Jóla ilmur og jólagjafir! Dásamlegt konukvöld með englakonum verður miðvikudagskvöld 1. desember klukkan 20:00 í sal Nýjalands (2.hæð), Eiðistorgi , Seltjarnarnesi.
Ilmandi te, orkuskart, blómadropar, hugleiðsla, söngur, dans, og myndlistasýning Helgu Sigurðadóttir „list sálarinnar". Hver veit nema að það verði kíkt í spil.
Unnur Arndísardóttir tónlistarkona mun syngja nokkur lög af sólóplötu sinni "Enchanted" sem kom út fyrir seinustu jól og verður til sölu á staðnum. Hún mun einnig kynna starfsemi sína.
Bjóddu uppáhalds vinkonu þinni með þér
Hlökkum til að sjá ykkur kæru konur!
Jólakveðjur,
Marta frá Púlsinum
Sigrún Vala frá Tesprotanum
Stefanía frá Nýjalandi








