ArtPhotos - nýtt ljósmyndagallerí - Fréttir
10.12.2010
ArtPhotos - nýtt ljósmyndagallerí
ArtPhotos er ljósmyndagallerí og sýningarsalur sem opnað var í Skipholti 35 þann 1. desember sl.
Í björtum sýningarsal verða seldar og sýndar ljósmyndir eftir marga ólíka listamenn sem allir eiga það þó sameiginlegt að vera konur.
Eigendur Gallerísins eru þær Berglind Andrésdóttir, Rakel Björt Jónsdóttir og Bára Kristjánsdóttir sem luku allar nýverið námi í listrænni ljósmyndun.
Segja þær að námi loknu, hafi þær áttað sig á því að unnendur ljósmynda ættu ekki auðvelt með að ganga inn í verslun og velja sér ljósmyndalist, því hafi þær skellt sér í djúpu laugina í þessum efnum, ef svo mætti taka til orða.
Ţrátt fyrir að Listahátíð í Reykjavík árið 2010 hafi verið veisla ljósmyndunar finnst þeim þörf á því að vegur ljósmyndarinnar á Íslandi fái þann sess sem hún á skilið, sem og þá viðurkenningu sem hún fær um allan heim.
Ásamt því að selja gjafakort, eigin verk og annarra kvenna bjóða þær upp á leigu á ljósmyndum og aðstöðu fyrir fyrir þá sem vilja skapa sína eigin list.
Meðal þeirra sem eiga verk í sölu eru, Sólný Pálsdóttir, María Kristín Steinsson, Rebekka Guðleifsdóttir, Rúna Dögg Cortes, Ólöf Erla Einarsdóttir, María Katrín, Ruth Ásgeirsdóttir, Ásdís Eva Ólafsdóttir, Ásta Sif o.fl.
Á degi hverjum bætist við og eru til að mynda væntanlegar myndir eftir Jónu Þorvaldsdóttur.
Galleríið er opið alla virka daga frá 12 til 18 og laugardaga 12 til 16.
Upplýsingar eru á síðu fyrirtækisins http://www.artphotos.is/
Meðfylgjandi myndir voru teknar á opnun gallerísins








