Gjafabréf Vanadísar - Fréttir
13.12.2010
Gjafabréf Vanadísar
Gjafabréf Vanadísar fyrir nærandi námskeið, draumavinnu eða ráðgjöf er tilvalin jólagjöf.
Hægt er að kaupa gjafabréf fyrir ákveðin námskeið eða önnur tilboð (s.s. ráðgjöf og draumahópa), en einnig er hægt að kaupa bréf fyrir ákveðna upphæð sem sú eða sá sem þiggur ákveður hvernig hún eða hann nýtir. Gjafabréf gildir í allt að ár og lengur ef um það er samið.
Vanadís býður upp á ýmiss konar námskeið, hópavinnu og ráðgjöf víða um land á nýju ári. Sjá nánar um námskeiðin og aðra starfsemi á vefsíðunni http://www.vanadis.is/ Yfirlit yfir fyrirhuguð námskeið á Akureyri, Reykjavík og víðar um land... og lönd ... verður birt og sent út á póstlistann á næstu dögum.
Hafðu samband á vanadis@vanadis.is eða með því að smella á hnappinn FYRIRSPURN á vefsíðunni.
Njótið aðventunnar!
Valgerður H. Bjarnadóttir








