Opnað fyrir umsóknir um miðjan janúar - Fréttir
6.1.2011
Opnað fyrir umsóknir um miðjan janúar
Ráðherra velferðarmála veitir styrkina sem veittir hafa verið ár hvert síðan 1991. Konur sem hafa góðar viðskiptahugmyndir eða reka fyrirtæki og eru að þróa nýjar vörur eða þjónustu, geta sótt um styrki sem geta numið allt að 2 milljónum króna.
Fyrirtækið/verkefnið þarf að vera í eigu konu/kvenna amk 50% og þarf að vera nýnæmi/nýsköpun í hugmyndinni auk þess sem hún þarf að skapa atvinnu til frambúðar.
Hægt er að sækja um styrki til gerðar viðskiptaáætlunar, styrki til markaðssetningar (erlendis eða innanlands), vöruþróunar eða hönnunar. Auk þess geta konur sem hafa nýlega stofnað fyrirtæki, eða eru að stofna fyrirtæki, sótt um styrk til að koma fyrirtækinu í framkvæmd og getur sá styrkur numið allt að 2 milljónum króna.
Ekki er hægt að sækja um styrki vegna stofnkostnaðar, rekstrarkostnaðar eða framkvæmda.
Sótt er um rafrænt hér á heimasíðunni http://www.atvinnumalkvenna.is/ og er umsóknarfrestur frá og með 15.janúar til og með 7.febrúar.
Nánari upplýsingar um reglur og umsóknir má finna á heimasíðunni og í síma 582-4914. Einnig má senda fyrirspurnir í netfangið atvinnumalkvenna@atvinnumalkvenna.is








