Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Hannar fćranlegan skjólvegg - Fréttir

20.1.2011

Hannar fćranlegan skjólvegg

Guðbjörg Guðmundsdóttir er ein af styrkhöfum atvinnumála kvenna árið 2010. Guðbjörg, sem er menntaður landslagsarkítekt, fékk ţá hugmynd að hanna færanlegan skjólvegg en á hinu vindasama Íslandi blæs vindurinn oft úr öllum áttum. Við fáum að heyra hér um þessa frábæru hugmynd.  

Segðu aðeins frá sjálfri þér - hver er konan?  

Ég heiti Guðbjörg Guðmundsdóttir og er menntuð sem Landslagsarkitekt frá Landbúnaðarháskólanum í Svíþjóð.  Einnig er ég með diplóma í ferðamálafræðum í dreifbýi frá Hólaskóla og BSc. í umhverfisskipulagi frá Landbúnaðarháskóla Íslands.

Til hvaða verkefnis fékkst þú styrk?  
Styrkurinn er til þess að þróa áfram hugmynd að færanlegum skjólvegg, en margir hafa sjálfsagt upplifað það að gott væri að skella upp skerm, eða tímabundnu skjóli þar sem ekki er hægt að setja varanlegan vegg.

Hvernig fékkstu hugmyndina að verkefninu þínu?
Einu sinni sem oftar sat fjölskyldan seinnipart dags úti í sólinni, en á þeim tíma er sólin helst í innkeyrslunni hjá okkur. Mig langaði að geta hindrað innsýn inn í innkeyrsluna án þess að loka henni alveg og því kom þessi hugmynd  upp, að setja upp skjólvegg sem auðvelt væri að færa. Ég velti því fyrir mér lengi úr hverju hægt væri að hafa vegginn og ræddi við ráðgjafa um málið. Það komu ýmsar hugmyndir fram, en ég endaði á því að hafa grind úr járni og gler sem klæðningu. Það tók ekki mjög langan tíma að gera grindina, en að finna heppilegt gler og hvernig það ætti að vera, var öllu meira mál. Svo kom að því að festa glerið í grindina og þá fyrst vandaðist málið. Það er búið að taka mjög langan tíma að finna út úr því en nú er loks komin niðurstaða í það. Einnig ákvað ég að hafa vegginn á hjólum þannig að auðvelt væri að færa hann til og ekki þörf á að burðast með hann í fanginu.

Hvað veitir þér innblástur og hvetur þig áfram ?
Ţað má kannski segja að það hafi verið margt, bæði reynsla og menntun sem ollu því að þessi hugmynd fæddist. Löngun til að skapa og sjá hugmynd verða að veruleika og ekki væri verra að hægt væri að koma henni í framleiðslu. Svo hefur fjölskyldan stutt mig og hjálpað mér eins og þau hafa getað við að finna út úr hlutunum.

Hvernig gekk þér að koma hugmyndinni áfram?
Ţað hefur gengið á ýmsu og ýmsar breytingar verið gerðar á ferlinum, en hægt gekk að koma smíðinni áfram, vegna þess að smiðurinn á við svokallað „jákvætt" vandamál að etja. En eftir hrun hefur verið svo mikið að gera hjá honum að hann hefur þurft að láta þetta sitja á hakanum. Efnisval hefur líka þvælst svolítið fyrir en er komið á hreint núna. Enn á ég eftir að finna út úr því hvernig hægt verður með auðveldum hætti að að tilla veggnum við eitthvað sem er jarðfast, þannig að hann verði stöðugri og þoli meiri vind. Eins er með geymslufestingar því ég geri ráð fyrir að hægt sé að geyma hann úti með því að leggja hann saman og festa upp við vegg.

Hvað er skemmtilegast og erfiðast við verkefnið ?
Ţað er skemmtilegt að vinna með svona færum smiðum sem geta smíðað nánast allt sem maður biður þá um. Það sem kom mest á óvart var hversu stöðugur veggurinn er, en  eftir er að prófa hann úti og með klæðningunni á. Erfiðast er að ákveða efnið og efnis þykkt, ég reikna nú einnig með að festingar verði erfiðar en þær er eftir að hanna. Það kom mér verulega á óvart hvað það var mikið mál að finna eitthvað til að festa gerið, það eru til klemmur sem hægt er að kaupa, en þær hentuðu ekki í þessu tilviki. Þá þurfti ég gúmmí skífur sem kæmu næst glerinu en þær er ekki hægt að kaupa, ég endaði með að þurfa að búa þær til sjálf.

Hvað er framundan hjá þér um þessar mundir?
Ţað er nú ekkert rosalega bjart framundan, verkefni á mínu sviði liggja ekki alveg á yfirborðinu.  Ég er þó að vonast til að geta gert vindprófanir á veggnum og hugsanlega markaðssetja hann með vorinu. En núna þarf ég að finna út úr festingar möguleikum, bæði hvernig hægt er að festa saman tvær eða fleiri einingar svo og geymslufestingar. Annars er þetta búið að vera fróðlegur ferill og athyglisvert að sjá hvað margir eru að gera spennandi hluti.


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk