Ađgengi fyrir alla - Fréttir
26.1.2011
Ađgengi fyrir alla
um vik að velja aðgengilega staði á Íslandi. Harpa er eigandi fyrirtækisins Aðgengi sem sinnir ráðgjöf og upplýsingagjöf varðandi aðgengismál fatlaðra.
Segðu aðeins frá sjálfri þér - hver er konan?
Ég heiti Harpa Cilia Ingólfsdóttir og er fædd 1969, hef menntun sem byggingarfræðingur og ferlihönnuður.
Til hvaða verkefnis fékkst þú styrk?
Ég sótti um styrk til að koma á fót leitarvél sem auðveldar fötluðum og fjölskyldum þeirra að velja aðgengilega staði í starfi og leik. Draumurinn er að allir geti ferðast um Ísland á sem auðveldastan hátt, nýtt þjónustu á sem flestum stöðum, heimsótt náttúruperlurnar okkar og notið náttúrunnar. Að hægt verði að kortleggja allt landið þannig að fatlaðir geti ferðast á öruggann og þægilegan hátt og geti fundið allar helstu upplýsingar um aðgengi áður en lagt er af stað.
Hvernig fékkstu hugmyndina að verkefninu þínu?
Ţörfin fyrir upplýsingar um aðgengi er mikil og eftir að hafa fengið ítrekaðar spurningar um hvort ég vissi um t.d. kaffihús eða veitingastaði sem væru með góðu aðgengi, ákváðum við hjá Aðgengi að skoða hvort við gætum ekki hannað upplýsingavef sem gæfi allar helstu upplýsingar um aðgengi að stöðum sem almenningur á að hafa aðgang að.
Hvaðan færð þú innblástur?
Reynslusögur fólks, skemmtilegar lausnir til að bæta aðgengi, fallegar lausnir
Hvernig hefur gengið að koma hugmyndinni og fyrirtækinu áfram?
Ţetta fór frekar hægt af stað. Fyrst ætluðum við að fara með þetta verkefni sem samfélagslegt framtak og fá styrki til að taka út aðgengi um allt land. Við ætluðum að hanna kerfið frá grunni og sóttum um styrki á mörgum stöðum en bárum nánast ekkert úr býtum. Þá var bara að hugsa verkefnið upp á nýtt. Við skoðuðum hvað Norðurlöndin voru að gera og komumst loks í samband við samtökin Foreningen Tilgængelighed for Alle í Danmörku. Þau hafa hannað merkjakerfi og gagnagrunn sem bæði er notaður til skýrslugerðar og birtingar upplýsinga. Akkúrat það sem við óskuðum okkur. Þá er hugsunin á bakvið það þannig að staðirnir sjálfir greiða fyrir úttektirnar svo verkefnið verður sjálfbært. Þannig er líka möguleiki á að þróa verkefnið áfram og halda því við.
Hvað er skemmtilegast ?
Ţegar maður sér árangur af því sem maður er að gera, hvort sem það er í bættu aðgengi eða geta bent fólki á staði þar sem allir eru velkomir.
Hvað er erfiðast?
Að berjast við peningadrauginn. Oftar en ekki er sparnaðurinn við byggingar fólginn í því að sniðganga aðgengi fyrir alla. Eigendur vilja hvorki eyða peningum né rými í stórar snyrtingar fyrir fatlaða, lyftur og sjálfopnandi hurðabúnað. Einnig verður maður leiður þegar verið er að gera breytingar og þær ekki rétt gerðar svo aðstaðan nýtist ekki.
Hvað hvetur þig áfram ?
Ţörfin fyrir bætt aðgengi og vonin um að framlag mitt geti skipt máli í baráttunni.
Hvað er framundan hjá þér um þessar mundir?
Við erum komin í samstarf við godadgang í Danmörku og búin að opna nýja heimasíðu með leitarvél http://www.gottadgengi.is/ . En þar sem vefurinn er alveg nýr hér á Íslandi eru ekki margar skráningar komnar inn og það er okkar verkefni á næstunni að skrá sem fjölbreyttasta starfsemi inn í gagnagrunninn svo vefurinn nýtist sem best.
Leitarvélin er á íslensku en einnig er hægt að leita að íslenskum stöðum á dönsku leitarvélinni á dönsku og að dönskum stöðum á íslensku. Markmiðið er að hin norðurlöndin taki þetta kerfi upp svo hægt verði að kortleggja ferðalög um nágrannalöndin á auðveldan hátt.
Viltu segja eitthvað að lokum ?
Ég vil þakka Atvinnumálum kvenna fyrir ómetanlegan stuðning. Styrkurinn er miklu meira en bara peningar. Að vera valinn styrkþegi er mikill heiður og gefur verkefninu byr undir báða vængi og veitir manni von og kjark til að halda áfram og dýpkar trúna á að maður sé að gera góða hluti sem skipta máli í samfélaginu.








