Brautargengisnámskeiđ á Akureyri og Reykjanesbć - Fréttir
18.1.2011
Brautargengisnámskeiđ á Akureyri og Reykjanesbć
Nú stendur yfir skráning á Brautargengisnámskeið á Akureyri og í Reykjanesbæ og er umsóknarfrestur til og með 27.janúar en kennsla hefst í byrjun febrúar.
Brautargengisnámskeið eru fyrir konur sem hafa viðskiptahugmynd og vilja læra að gera viðskiptaáætlun. Markmið námskeiðsins er að konur læri að gera viðskiptaáætlun, að þær kynnist grundvallaratriðum varðandi stofnun fyrirtækja og öðlist hagnýta þekkingu á því sem viðkemur fyrirtækjarekstri s.s. stefnumótun, markaðsmálum, fjármálum og stjórnun.
Námskeiðið byggist upp á fyrirlestrum. verkefnavinnu og persónulegri handleiðslu og hentar konum sem hafa nýja hugmynd og þeim sem nú þegar reka fyrirtæki.
Nánari upplýsingar og skráning er á heimasíðu Nýsköpunarmiðstöðvar www.impra.is en auk þess er hægt að fá upplýsingar hjá Selmu Dögg Sigurjónsdóttur í síma 522-9434 eða selma@nmi.is








