Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Atvinnuþróun og nýsköpun í sjávarbyggðum - Fréttir

19.1.2011

Atvinnuþróun og nýsköpun í sjávarbyggðum

AVS rannsóknarsjóður í sjávarútvegi kynnir nýjan flokk umsókna þar sem lögð er áhersla á verkefni sem geta
skapað ný störf og verðmæti í sjávarbyggðum landsins. Í þessum umsóknarflokki er lögð áhersla á styttri verkefni sem tengjast t.d. ferðaþjónustu, framboði á sjávarfangi, nýjum vörum eða þjónustu. Mikilvægt er að leggja fram vel rökstuddar og arðvænlegar hugmyndir að verkefnum sem geta aukið fjölbreytni og eflt atvinnu og verðmætasköpun.Hægt er að sækja um styrki sem tengjast matarferðamennsku, hönnun, nýju hráefni, sjálfbærni, uppruna, ferðaþjónustu, vöruþróun, fullvinnslu, vörum í smásölu eða á borð neytenda, nýjar tegundir, smáframleiðsla o.m.fl. Hámarkstími verkefna er 12 mánuðir og skal skila afrakstursskýrslu til sjóðsins við lok verkefnisins.

Hámarksupphæð styrkja er 3 m.kr. og er miðað við að hlutfall styrks af heildarkostnaði verkefnisins verði ekki hærra en 50%. Umsóknafrestur er 1.febrúar 2011 og skal skila umsóknum með rafrænum hætti á netfangið avs@avs.is fyrir kl 17:00 þann dag en einnig skal senda undirritað eintak til rannsóknarsjóðsins.

Allar frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu sjóðsins


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk