Námskeið um gerð Leonardo umsókna - Fréttir
19.1.2011
Námskeið um gerð Leonardo umsókna
Fimmtudaginn 20.janúar, verður haldið námskeið um gerð Leonardo umsókna um yfirfærsluverkefni. Námskeiðið verður haldið í Námu, sal Endurmenntunar HÍ, Dunhaga 7 kl. 13.00-15.00.
Styrkir eru veittir til skóla, stofnana, fyrirtækja og annara lögaðila sem sinna starfsmenntun. Tilgangurinn er að aðlaga og yfirfæra þekkingu og aðferðir sem hafa verið þróaðar í öðrum löndum til nýrra markhópa og starfsgreina í fleiri Evrópulöndum.
Dæmi um verkefni:
Innleiðing nýrra kennsluaðferða og yfirfærsla og þýðing námsefnis
Þróun færni og hæfni kennara og leiðbeinenda í starfsmenntun
Nýjar aðferðir í vinnustaðaþjálfun
Mat á raunfærni og réttindum
Þátttakendur í verkefnum eru a.m.k. 3 aðilar frá jafnmörgum Evrópulöndum. Veittir eru styrkir til 12-24 mánaða og styrkupphæðir nema allt að 300.000 evrum.
Umsóknarfrestur vegna yfirfærsluverkefna er til 28.febrúar 2011.
Námskeiðið er án endurgjalds og öllum opið og fer skráning fram í síma 525-4900 og með tölvupósti á lme@hi.is.
Hægt er að óska eftir aðgengi að námskeiðinu í gegnum fjarfundabúnað símenntunarmiðstöðva á landsbyggðinni.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð má finna á www.leonardo.is








