Lífsvefurinn - sjálfsstyrkingarnám fyrir konur - Fréttir
31.1.2011
Lífsvefurinn - sjálfsstyrkingarnám fyrir konur
Lífsvefurinn er nám fyrir konur sem vilja læra að þekkja sjálfar sig betur og ná að vefa hinn margþætta vef lífsins á markvissan
hátt í einkalífi og starfi. Þetta nám hentar afar vel fyrir konur sem í störfum sínum styðja við aðrar konur.
Helstu efnisþættir námskeiðsins eru: sjálfsþekking, sjálfsmynd og samskipti; saga, hlutverk og staða kvenna; heilsa kvenna og tilfinningar; draumar og goðsagnir; fyrirmyndir og fordómar.
Markmiðin eru m.a. að: læra að þekkja og virða sjálfa sig; læra að greina og vinna úr því sem er erfitt og setja sér raunhæf markmið; læra leiðir til skapandi samskipta; styrkja jákvæða kvenímynd/sjálfsmynd sína; og þekkja sögu sína, lífsgildi, lífstilgang, rétt sinn og skyldur.
Tími, staðsetning og verð - Grunnnámskeið (20 klst)
Miðvikudagar 16.feb, 16.og 30.mars, 13. og 27.apríl kl.17 - 20 og laugardagur 26.feb. kl.10 - 15
Kennt er í AkureyrarAkademíunni (gamla Húsmæðraskólanum), Þórunnarstræti 99 og er leiðbeinandi Valgerður H. Bjarnadóttir.
Verð er kr.35.000 fyrir grunnnámskeiðið.
ATH! flest stéttarfélög og sumir vinnuveitendur styrkja námskeiðið.
Framhald
Vanadís býður upp á 40 klst framhaldsnám fyrir konur sem vilja dýpka sig enn frekar í Lífsvefnum.
Skráning á nánari upplýsingar í vanadis@vanadis.is eða í síma 895 3319.
Einnig eru frekari upplýsingar um námskeið Vanadísar á www.vanadis.is
Valgerður H. Bjarnadóttir
Vanadís - rætur okkar, draumar og auður
Auður Valgerðar ehf.
AkureyrarAkademíunni
Ţórunnarstræti 99
600 Akureyri
file:///C:/Users/Ásdís/AppData/Local/Temp/notes2AF469/www.vanadis.is
sími 895 3319








