FKA heiđrar konur - Fréttir
2.2.2011
FKA heiđrar konur
FKA heiðrar fjórar framúrskarandi konur
Ţað var mikið um dýrðir í Ráðhúsi Reykjavíkur síðdegis í dag þar sem FKA; Félag kvenna í atvinnurekstri afhenti sínar árlegu viðurkenningar að viðstöddum fjölda þeirra karla og kvenna sem standa í framlínu íslensks viðskipta- og atvinnulífs.
Hafdís Jónsdóttir, formaður félagsins ávarpaði gesti og bauð þá velkomna en að því búnu afhenti Árni Páll Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra fjórum konum viðurkenningar.
FKA viðurkenningin
FKA viðurkenninguna 2011 hlaut Aðalheiður Birgisdóttir - betur þekkt sem Heiða í Nikita. Heiða stofnaði Nikita ásamt þremur öðrum árið 2000 og allar götur síðan hefur fyrirtækið vaxið jafnt og þétt. Nikita framleiðir fyrst og fremst fatnað fyrir stelpur sem stunda snjóbretta-íþróttina en að sögn Heiðu hefur löngum verið lítið framboð af fötum fyrir stelpur í þeirri grein - og gildir þá einu hvort um er að ræða föt sem notuð eru á brettunum sjálfum eða svokallaðan „Street wear" klæðnað. Nikita er orðið heimsþekkt vörumerki og selur vörur sínar í 30 löndum víða um heim. Öll hönnun og vöruþróun fer fram á Íslandi en vörurnar eru að mestu leyti framleiddar í Asíu. Skrifstofa félagsins í Þýskalandi sér hinsvegar um flest er lýtur að fjármálum og flutningum.
Undir stjórn Heiðu og félaga hefur Nikita náð fótfestu á erlendum markaði og þykir bera af á sínu sviði hvað snertir listræna útfærslu og vönduð vinnubrögð. Þrátt fyrir öran vöxt hefur skynsemin verið höfð að leiðarljósi. Til marks um það má nefna að yfirbygging félagsins er lítil og höfuðstöðvar Nikita eru enn í sama húsnæði og þær voru þegar lagt var af stað fyrir ellefu árum.
Hvatningarviðurkenning
Hvatningarviðurkenningu FKA hlaut Margrét Pála Ólafsdóttir, leikskólastjóri og stofnandi Hjallastefnunnar. Margrét Pála er með meistaragráðu í uppeldis- og menntafræði og er nú að ljúka MBA námi - svona milli þess sem hún stýrir tíu leikskólum og þremur grunnskólum. Hún er löngu landsþekkt fyrir baráttu sína fyrir mannréttindum kvenna, geðsjúkra, samkynhneigðra og ekki síst barna. Á sínum tíma mættu hugmyndir hennar um kynjaskipta leikskóla mikilli gagnrýni en óhætt er að segja að með árunum hafi tortryggni manna minnkað og mótvindurinn snúist í meðbyr. Sjálf segist hún sannfærð um að hægt sé að breyta heiminum með því að stuðla að vellíðan barna. Áhrifaríkasta leiðin sé að kenna börnum að standa með sjálfum sér en bera jafnframt virðingu fyrir tilfinningum og skoðunum annarra. Á þessu byggi hugmyndafræði Hjallastefnunnar.
Margrét Pála hefur hlotið hina íslensku fálkaorðu og fjölda annarra viðurkenninga fyrir frumkvöðlastarf í skólamálum. Hún er óþreytandi þegar kemur að því að berjast gegn hvers kyns misrétti og mun vafalítið halda því áfram hvað sem öllu lófataki líður. Hvatningarverðlaun FKA hlýtur hún fyrir allt þetta; að vera til fyrirmyndar í frumkvöðlastarfi sínu og öðrum konum ómetanleg hvatning til að standa með sjálfum sér og láta til sín taka í samfélaginu.
Ţakkarviðurkenning
Ţakkarviðurkenningu FKA hlaut Dóra Guðbjört Jónsdóttir, gullsmiður í Gullkistunni við Frakkastíg. Þó faðir Dóru hafi einnig verið gullsmiður þótti það langt í frá sjálfsagt að hún fetaði í fótspor föður síns. Um miðbik síðustu aldar var gullsmíði nefnilega karla-fag og faðir hennar tók því afar fálega þegar hún sóttist eftir því að komast á samning hjá honum. Henni tókst þó að sannfæra hann að lokum og eftir að hún lauk námi - bæði hér heima og í Svíþjóð - unnu þau feðginin hlið við hlið þar til hann lést 1970. Segja má að sérgrein Dóru sé íslenski þjóðbúningurinn því ekki aðeins hefur hún helgað sig smíði þjóðbúningasilfurs heldur á hún einnig sæti í Þjóðbúningaráði fyrir hönd Þjóðdansafélags Reykjavíkur. Dóra var kjörin formaður Félags íslenskra gullsmiða 1974 - og varð þar með fyrst kvenna á norðurlöndum til að gegna formannsstöðu fagfélags gullsmiða. Dóra fagnaði áttatíu ára afmæli sínu í haust en rekur enn bæði verkstæði og verslun í miðborg Reykjavíkur. „Í tuttugu ár hefur fólk verið að spyrja mig hvort ég sé ekki alveg að fara að hætta þessu" segir hún, „en ég svara því til að það sé enginn til að reka mig. Þannig að ég mun halda áfram að vinna svo lengi sem heilsan leyfir og ég hef gaman af þessu". Í tæp sextíu ár hefur Dóra smíðað gullfallegt búningasilfur og staðið þannig vörð um menningarverðmæti þjóðarinnar. Fyrir það var hún sæmd íslensku fálkaorðunni í upphafi þessa árs. Félag kvenna í atvinnurekstri vill einnig þakka Dóru fyrir að hafa smíðað mörg af dýrustu djásnum íslenskra kvenna og örlæti hennar við að miðla öðrum af þekkingu sinni.
Gæfusporið
Gæfusporið er veitt því íslenska fyrirtæki sem þykir hafa skarað fram úr við að virkja kraft kvenna innan sinna raða.
Gæfusporið 2011 hlaut Íslandsbanki - en hlutfall kynja í framkvæmdastjórn bankans er nú hnífjafnt. Að sögn Birnu Einarsdóttur, bankastjóra er þessi árangur ekki afrakstur fjölda samráðs- og nefndafunda - heldur einfaldlega vilja til að jafna hlut kynjanna. „Þetta er ekkert flókið" segir hún. „Ef þú vilt breyta - þá bara gerir þú það. - Ef þú hinsvegar vilt forðast breytingar ... þá skiparðu nefndir, ráð og samstarfshópa".
Íslandsbanki hefur undir stjórn Birnu Einarsdóttur náð að virkja kraft beggja kynja - bankanum, starfsfólki og viðskiptavinum til heilla. Fyrir það fær Íslandsbanki Gæfuspor FKA 2011.
(Tekið af heimasíðu Félags kvenna í atvinnurekstri)








