Ný námskeið að hefjast í Heilsuborg - Fréttir
24.2.2011
Ný námskeið að hefjast í Heilsuborg
Heilsulausnir eru námskeið þar sem fléttað er saman hreyfingu og vandaðri fræðslu fjölmargra fagaðila sem gefa ráð um það hvað hægt er að gera til að lifa heilbrigðu lífi, líða vel andlega sem líkamlega og fyrirbyggja heilsubrest. Að heilsulausnum standa læknar, sjúkraþjálfarar, íþróttafræðingar, sálfræðingar og hjúkrunarfræðingur. Lausnirnar eru mismunandi eftir því hvaða hóp þú tilheyrir.
- Heilsulausn 2 er 8 vikna námskeið sem hentar einstaklingum sem glíma við einkenni frá stoðkerfi svo sem bakverki, eftirstöðvar slyss eða gigt og þeim sem vilja hreyfingu undir leiðsögn sjúkraþjálfara. Næsta námskeið hefst 4. apríl. Skráning hafin - Tryggðu þér sæti núna.
- Heilsulausn 3 er 12 vikna námskeið með eftirliti í ár sem hentar þeim sem glíma við lífsstílstengda sjúkdóma s.s. offitu, hjartasjúkdóma og/eða sykursýki. Námskeiðið miðar að því að innleiða heilbrigðan lífsstíl til langframa og aðstoða viðkomast af stað í hreyfingu. Næsta námskeið hefst 4.apríl. Skráning hafin - Tryggðu þér sæti núna.
Hreyfing og ofþyngd
Námskeið án fræðslu fyrir fólk sem er of þungt og vill bæta hreyfingunni inn í daglegt líf sitt. Hreyfing og ofþyngd er í 4 vikur á þriðjudögum og fimmtudögum og getur fólk valið um að vera kl. 10.00 eða 18.30. Verð: 13.900.- Námskeiðið hefst 7.mars.
Námskeið fyrir 60 ára og eldri
Hentar vel þeim sem eru 60 ára og eldri og vilja auka vöðvastyrk, hægja á beinþynningu, ná betra jafnvægi, auka úthald við dagleg störf og fá markvissa þjálfun og ráðgjöf. Námskeiðið er 4 vikna námskeið með léttri leikfimi, tækjaþjálfun, slökun og vellíðan. Kennsla er á mánudögum og miðvikudögum kl: 11.00. Verð: 9.900.- Næsta námskeið hefst 7.mars.
Zumba
Dansaðu þig í form með einföldum sporum, skemmtilegari tónlist og góðum félagsskap. 4 vikna námskeið í hádeginu á mánudögum og miðvikudögum frá kl: 12.00 til 12.50 eða seinnipartinn frá kl: 17.30 til 18.30. Verð: 13.900.- Næstu námskeið hefjast 7. mars.
Zumba fyrir alla fjölskylduna
Zumba er heilsusamleg og skemmtileg afþreying fyrir alla fjölskylduna. Virkjum alla fjölskylduna og njótum samverunnar með gleði og heilbrigði að leiðarljósi. Einföld spor og skemmtileg tónlist. 8 vikna námskeið. Kennt er alla föstudaga kl. 17.30-18.30. Næsta námskeið hefst 7.mars. Verð: 13.900 (50% afsláttur fyrir aðra fjölskyldumeðlimi).
Líf án streitu - jafnvægi og vellíðan
Ef þú vilt læra að nýta streitu á uppbyggjandi hátt og öðlast heilbrigðara líf þá er Líf án streitu- jafnvægi og vellíðan eitthvað fyrir þig. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Erla Gerður Sveinsdóttir, læknir, Magna Fríður Birnir, hjúkrunarfræðingur og Sigrún Ása Þórðardóttir, sálfræðingur. Vikukort í heilsuræktina fylgir. Námskeiðið er haldið fimmtudaginn 3. mars frá kl. 17.00-20.00. Verð kr. 4.900








