Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

8. mars - Alţjóđlegur baráttudagur kvenna - Fréttir

8.3.2011

8. mars - Alţjóđlegur baráttudagur kvenna

Í dag, 8. mars, er haldið upp á alþjóðlegan baráttudag kvenna. Ýmiskonar dagskrá er í boði í tilefni dagsins á vegum ýmissa kvennasamtaka.

Kvenréttindafélag Íslands verður með dagskrá  í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur kl. 17.00 í dag.  Meðal þeirra sem koma fram eru Vigdís Finnbogadóttir, Elín Björg Jónsdóttir, Katrín Oddsdótir, Andrés Magnússon, Ellen Kristjánsdóttir.

Landnefnd UN WOMEN stendur fyrir viðburði á Laugavegi 19 (Við Hljómalindareitinn) kl. 17.15 í dag. Tilefnið er sameining UNIFEM við þrjár systurstofnanir innan Sameinuðu þjóðanna. Þessi tímamótastofnun hefur hlotið nafnið UN Women og tók formlega til starfa þann 24. febrúar síðastliðinn.

Samstarfsverkefni UN Women og Kitty Von-Sometime og WEIRD GIRLS PROJECT  verður kynnt og mun fjallkona  ávarpa gesti ásamt kröftugri tónlist og gleðilegum viðburðum.

Markmið hátíðarinnar er að vekja Íslendinga til umhugsunar um stöðu kvenna í þróunarlöndum og á átakasvæðum en jafnframt að gleðjast yfir því að aðildaríki Sameinuðu þjóðanna hafi loksins ákveðið að setja meiri áherslu á jafnréttismál. Til að draga úr fátækt í heiminum er bráðnauðsynlegt að efla konur um allan heim. UN Women er skref í rétta átt.

Gestir eru boðnir að mæta fyrir utan Laugaveg 19 (við Hljómalindarreitinn) kl. 17.15 eða við klukkuna á Lækjartorgi kl. 16.55 og labba saman upp að Laugavegi 19.

Jafnréttisstofa, ASÍ, KÍ, BHM, BSRB og Akureyrarbær boða til hádegisfundar á Akureyri þar sem rætt verður um stöðu kvenna og karla á vinnumarkaði, launajafnrétti og aðgerðir sem geta stuðlað að jafnrétti kynjanna.  Fundurinn fer fram á hótel KEA frá kl. 12-13:30.

Á hádegisfundi num sem er á vegum Jafnréttisstofu, ASÍ, KÍ, BHM, BSRB og Akureyrarbæjar verða flutt þrjú erindi.  Kristín Ástgeirsdóttir fjallar um launamun kynjanna en í ár eru 50 ár frá setningu laga um launajöfnuð kvenna og karla. Katrín Björg Ríkarðsdóttir kynnir aðgerðir Akureyrarbæjar til að afnema kynbunið launamisrétti og hvernig nýtt verklag getur tryggt góðan árangur og Katrín Anna Guðmundsdóttir flytur erindi um kynjaða hagstjórn og fjárlagagerð á tímum niðurskurðar.

 


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk