Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Ársfundur Nýsköpunarmiðstöðvar - Fréttir

11.3.2011

Ársfundur Nýsköpunarmiðstöðvar

Ársfundur Impru verður haldinn þann 17. mars nl. á Hilton hóteli í Reykjavík og hefst hann kl. 8.00. Yfirskrift fundarins að þessu sinni er "Lausnir og lífsgæði".  Sjá dagskrá hér að neðan.

Fyrir Nýsköpunarmiðstöð Íslands eru lífsgæði einn af hornsteinum tilgangsins og er yfirskrift fundar lýsandi fyrir þau fjölmörgu verkefni og áskoranir sem Nýsköpunarmiðstöð tekst á við á degi hverjum, á mörgum sviðum þekkingarsamfélagsins í samvinnu við einstaklinga, fyrirtæki, skóla og stofnanir. Aðstaða á Nýsköpunarmiðstöð og sú sérfræðiþjónusta og færni sem til staðar er, gerir stofnuninni kleift að takast á við rannsóknir á nýjum fræðasviðum sem hafa eða munu hafa mikil áhrif á framþróun íslensks atvinnulífs. 

Dagskrá fundar

Fundarstjóri: Þorsteinn J. fjölmiðlamaður 

      Kl. 08:00   Léttur og ljúffengur árbítur
      
      Kl. 08:30   Ávarp ráðherra - Katrín Júlíusdóttir
      
      Kl. 08:40    „Sól er á morgun" - Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri
      
      Kl. 08:50   Betri borgarbragur - Björn Marteinsson, verkefnastjóri
                         Hið byggða umhverfi okkar er mikill áhrifavaldur í mótun lífs okkar að því er varðar lífsgæði s.s. 
                         heilsu, sjónræna örvun og upplifun. Það skiptir því miklu að vel takist til í mótun hins byggða 
                         umhverfis og vel sé farið með fjármuni og náttúruauðlindir þegar byggt er til framtíðar                       

      Kl. 09:00   Stef Nýsköpunarmiðstöðvar - Karl Friðriksson, framkvæmdastjóri
                         Kynning á nýju stefi Nýsköpunarmiðstöðvar sem nýtt verður í allt viðeigandi kynningarefni og á
                         ráðstefnum. Arnar Guðjónsson tónlistarmaður og starfsmaður Nýsköpunarmiðstöðvar á heiðurinn af 
                         stefinu.
      
      Kl. 09:05   Boðskapur frá Nýsköpunarmiðstöð víða um land
                         Myndband þar sem starfsmenn Nýsköpunarmiðstöðvar víða um land segja frá verkefnum sínum. 
                        
Nýtt stef Nýsköpunarmiðstöðvar verður frumflutt í þessu kynningarmyndbandi. 
      
      Kl. 09:15   Markaðsþróun á vettvangi: LivingLab - Anna María Pétursdóttir, starfsmannastjóri hjá Vífilfelli
                         Living Lab aðferðinni er ætlað að koma á tengslum milli framleiðenda afurða og notenda þeirra með 
                         það að markmiði að gera nýsköpun skilvirkari. Hugmyndafræðin gengur út á það að vinna að 
                         nýsköpun í nánu sambandi við notendur, atvinnulíf, háskóla og framleiðendur vöru og þjónustu í 
                         opinbera og einkageiranum.
                         
      
      Kl. 09:25   Að byrja smátt en hugsa stórt - Sigríður Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri
                          Mikill og sýnilegur árangur hefur verið hjá þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem staðsett eru á
                          frumkvöðlasetrum Nýsköpunarmiðstöðvar. Sigríður segir frá setrunum og kynnir fimm 
                          frumkvöðla sem hafa árangursríka sögu að segja:  
                                    
                                    MindGames: Hugþjálfun og tölvuleikir - Deepa Iyengar 
                                    Gyðja Collection: Hönnun fylgihluta og framleiðandi EFJ ilmsins - Sigrún Lilja Guðjónsdóttir 
                                    Sæbýli: Eldi á botnlægum sjávardýrum - Ásgeir Guðnason
                                    Lipid Pharmaceuticals: Lyfjaþróun úr lýsi - Guðrún Marta Ásgrímsdóttir
                                    Locatify:  Leiðsögumaður í snjallsíma - Leifur Björn Björnsson
      
      
Kl. 09:45  Stefnumiðuð nýsköpun - Berglind Hallgrímsdóttir framkvæmdastjóri, Páll Kr. Pálsson
                         framkvæmdastjóri Skyggnis og Hákon Gunnarsson framkvæmdastjóri hjá Gekon 
                         Innleiðing á aðferðafræði og stjórnun sem snýr að verðmætasköpun á öllum sviðum rekstrar með 
                         skipulögðum hætti í starfandi fyrirtækjum.  
      
      Kl. 10:00  Ævintýri í Abu Dhabi - Sunna Ó. Wallevik, verkefnastjóri og Ólafur H. Wallevik, framkvæmdastjóri 
                        Unnið er að þróun umhverfisvænnar steinsteypu í samvinnu við fyrirtækið readyMix í Abu Dhabi sem 
                        snýr að þróun tækis sem mælir gæði steinsteypu í trommlu steypubíls. 
      
      Kl. 10:10   Íslenski hönnuðurinn sem LadyGaga valdi - Vera Þórðardóttir, hönnuður
                         Vera Þórðardóttir er íslenskur fatahönnuður sem hefur átt stigvaxandi velgengni að fagna. Bandaríska 
                         söngkonan LadyGaga var í jakka frá Veru þegar hún kom fram á árlegri góðgerðarskemmtun Eltons 
                        Johns í júní. Hönnun Veru er um margt óvenjuleg, en hún notar silikon efni á skemmtilegan og 
                         frumlegan hátt í hönnun sinni.  
      
      Kl. 10:30   Ársfundi slitið

Fundurinn er opinn og eru allir áhugasamir hvattir til að mæta.

Skráning fer fram
hér


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk