Hvernig er ţitt tengslanet? - Fréttir
15.3.2011
Hvernig er ţitt tengslanet?
Þegar þú vinnur einn eða í fárra manna hópi er hætta á vissri einangrun. Ein af bestu leiðunum til að einangrast ekki er að koma sér upp öflugu stuðningsneti. Hér eru nokkrar hugmyndir hvernig þú getur gert það:
-
Netverk snúast um samskipti og gagnvirkni
Um leið og þú ferð að ræða við fólk býðst þér hjálp, og sömuleiðis með því að hlusta á aðra þá sérðu hvernig þú getur hjálpað þeim. -
Netverk þitt ætti að innihalda tengiliði sem geta komið rekstri þínum til góða
Sem dæmi má nefna sérhæfða ráðgjafa og áreiðanlega birgja. Reyndu að leggja mat á styrk þinn og veikleika til að geta nálgast fólk sem er sterkt þar sem þú ert veikastur fyrir. Ef þig skortir t.d. hæfni í markaðssetningu og bókhaldi ættir þú að byrja á því að ná tengslum við fólk sem þú treystir og sem er hæft á þessum sviðum. -
Farðu í gegnum símaskrána þína
Hafðu samband við alla þá sem þú þekkir vel, jafnvel þó þú hafir ekki verið í sambandi við þá í töluverðan tíma. Segðu þeim frá því hvað þú ert að gera og líklegt er að þessir tengiliðir geti vísað þér áfram veginn og svo koll af kolli. Ekki hlaupa yfir tengiliði sem þér finnst kannski ekki augljóst að geti hjálpað þér, eins og gamla kennara og vini. -
Gerðu lista yfir hugsanlega talsmenn
Útbúðu lista yfir það fólk sem getur hugsanlega hjálpað þér og talað þínu máli. Hafðu samband við þetta fólk með reglulegu millibili, t.d. með 90 daga millibili, með tölvupósti eða í síma, ýmist til að kasta á það kveðju eða til að koma áleiðs nýjum upplýsingum. -
Vertu virkur
Vertu duglegur við að sækja fundi og ganga í þau samtök sem þér standa til boða, en hvoru tveggja er góð leið til að hitta fólk sem getur orðið mikilvægir tengiliðir í netverki þínu. -
Ekki vera feiminn við að taka af skarið
Í fjölmörgum félagasamtökum og klúbbum þarf fólk til að vera í stjórn og forsvari fyrir ýmsa hluti. Með því að taka þátt í slíku starfi kynnist þú fjöldanum öllum af fólki, auk þess sem slík störf kunna að auka trúverðugleika þinn sem athafnamanns. -
Stígðu á stokk
Ekki vera feiminn við að halda námskeið og kynningarfundi, skrifa greinar í blöð og á netið en þetta geta verið góðar leiðir til að laða fleira fólk að fyrirtæki þínu. -
Notaðu veraldarvefinn
Veraldarvefurinn getur verið mikilvæg uppspretta upplýsinga og getur nýst vel fólki sem vinnur heima til að mynda netverk. Notaðu vefinn til að finna atburði sem eru á dagskrá nærri heimkynnum þínum, skráðu þig á póstlista og nýttu þér spjallþræði til að mynda tengsl. -
Vertu tilbúinn til að hjálpa
Ekki hafa aðeins þín eigin markmið í huga. Ef þú getur aðstoðað einhverja aðra bjóddu þá fram aðstoð þína. -
Vertu viðbúinn
Þú getur komist í tengsl við góða tengiliði hvar og hvenær sem er þannig að þú skalt alltaf vera með nafnspjald á þér. -
Allt er gott í hófi
Mundu að þrátt fyrir að mikilvægt sé að koma sér upp góðu neti tengiliða þá má ekki eyða of miklum tíma í netverkið. Þú mátt ekki vanrækja þínar daglegu skyldur.








