Heimasíđa vikunnar - Fréttir
14.3.2011
Heimasíđa vikunnar
Nú hleypum við af stokkunum nýjung en í hverri viku verður áhugaverð og skemmtileg heimasíða kynnt fyrir lesendum.
Að þessu sinni er það heimasíðan www.gottadgengi.is sem verður kynnt en þar er hægt að fá ýmsa ráðgjöf og fræðslu sem varðar aðgengi fatlaðra.
Um fyrirtækið
Aðgengi ehf var stofnað 2005 og veitir ráðgjöf, gerum úttektir og skýrslur um ferlimál innandyra sem utandyra.
Úttektir: Aðgengi ehf býður fyrirtækjum og einstaklingum að gera nákvæma úttekt á aðgengi fatlaðra að öllu húsnæði þess. Niðurstöðum er skilað í ítarlegri skýrslu með kostnaðarmati á þá þætti sem breyta þarf til að uppfylla kröfur um aðgengi fyrir alla. Við bjóðum upp á teikningarýni vegna ferlihönnunar fyrir hönnuði og sveitarfélög. Reynsla okkar segir að máltælið "Betur sjá augu en auga" á oft við þegar leggja á lokahönd á aðaluppdrætti.
Hönnun: Hönnun og útfærsla á tillögum á teikningaformi ef óskað er.
Eftirlit: Bjóðum upp á ferilhönnun nýbygginga og endurbóta með tilliti til aðgengis fyrir alla, bæði á hönnunarstigi og á meðan framkvæmdum stendur.
Samstarf: Við ýmsa faghópa svo sem iðjuþjálfa, hönnuði, félög fatlaðra o.s.frv.
Af hverju ferlihönnun og úttektir
Mannréttindamál eru í brennidepil allsstaðar í hinum vestræna heimi. Aðgengi allra að mannvirkjum sem ætluð eru til almenningsnota, húsnæði, verslanir og þjónustufyrirtæki, verður að vera fullnægjandi. Auk þess ættu allir vinnustaðir að vera aðgengilegir öllum svo fulls jafnréttis sé gætt. Kunnátta og vitneskja um þessi málefni ekki sjálfgefin. Því er mikilvægt að til sé fyrirtæki sem getur leiðbeint við byggingu nýrra mannvirkja, tekið út og greint eldra húsnæði með tilliti til allra. Við bjóðum þessa þjónustu og teljum að við höfum til þess góðar forsendur.
Aðgengi ehf hefur nýlega gert samstarfssamning við danska félagið Tilgængelighed for alle (FTA) sem rekur Merkjakerfið og leitarvélina http://www.godadgang.dk/
Við viljum geta kortlagt ferðir um landið, með tilliti til aðgengis, á einfaldan hátt, t.d. gistimöguleika, máltíðir og skoðunarferðir hringinn í kringum landið. Gott aðgengi / Access Iceland verkefnið er lausn á þessu: Úttektir á aðgengi, merkjakerfið, vottun og leitarvél.
Gott aðgengi / Access Iceland er kærkomin viðbót við það sem Aðgengi ehf hefur verið að fást við. Með þessari viðbót getum við boðið upp á vottað gæðakerfi á aðgengismál bygginga og útivistarstaða.
Skýrslurnar sem unnar eru úr þessu kerfi eru einnig mjög góð tæki til að forgangsraða úrbótum á aðgengi fyrir alla í sambandi við endurbætur mannvirkisins.
Aðgengi fyrir alla alltaf allsstaðar








