Jóga - leiđ til ađ vaxa - Fréttir
11.3.2011
Jóga - leiđ til ađ vaxa
Guðrún Darshan rekur jógastöðina Andartak en þar er boðið upp á fjölbreytt námskeið í jóga og öndunartækni auk þess sem
að boðið er upp á nudd og hómópatíu af ýmsu tagi. Fyrirtækið er 7 ára gamalt hefur nýverið flutt aðsetur sitt í Skipholt 29.
Guðrún mun skrifa pistla um jóga og andleg málefni inn á síðuna okkar og bjóðum við hana velkomna. Hér fáum við að vita meira um konuna og starfsemi jógastöðvarinnar.
Segðu aðeins frá sjálfri þér – hver er Guðrún Darshan?
Við getum byrjað á nafninu mínu; Darshan er andlega nafnið mitt og þýðir sú sem upplifir Guð, sú sem veitir blessun. Kennarinn minn Shiv Charan Singh, gaf mér þetta nafn. Andlega nafnið stendur fyrir eiginleika sem ég reyni að tileinka mér. Ég er að leitast við að vaxa inn í það að standa undir nafni. Auk þess er ég í sambúð og móðir tveggja barna sem fæddust með 16 ára millibili þó að eldra barnið mitt geti varla talist barn lengur.
Ég starfa sem hómópati og jógakennari og leiðbeinandi í líföndun. Ég hef í mörg ár heillast af ýmsum leiðum til að vaxa og auðga andann. Ég kenni form af jóga sem heitir Kundalini jóga og stunda það sjálf daglega.
Hvernig kom hugmyndin að því að stofna jógasetur?
Ég hef verið að kenna jóga í mörg ár og hef þá leigt mér húsnæði fyrir kennsluna. Nú var komið að því að taka næsta skref. Mig langaði að stofna jógastöð sem byði aðeins upp á Kundalinijóga. Ég skipulegg auk þess kennaranám í kundalini jóga, sem hófst í haust.
Hvað veitir þér innblástur?
Kundalini jóga er svo nærandi og styrkjandi og ég heillaðist af þessari leið þegar ég kynntist henni. Ég hafði lengi ætlað að koma mér upp daglegri iðkun jóga en það tókst ekki fyrr en ég kynntist Kundalini jóga. Og af því það hefur svo djúp og eflandi áhrif á mig, þá fæðist ósjálfrátt sú löngun til að deila því áfram. Það veitir mér innblástur að kenna. Lífið sjálft er líka mjög góður kennari og fjölskyldan mín minnir mig á að gera og vera mitt besta.
Hvernig gengur þér að koma hugmyndinni og fyrirtækinu áfram ?
Það gengur vel. Það tekur jú alltaf tíma að byggja upp. Ég var svo heppin að finna fallegan sal. Kundalini jóga er jóga upplifunar og þeir sem reyna það finna miklar breytingar á sér. Það er þannig sem jóga hefur vaxið hingað til – fólk miðlar af sinni reynslu og þannig spyrst það út. Við erum að byrja að stíga inn í jógabylgjuna hér á Íslandi.
Hvað er skemmtilegast ?
Að kenna, að sjá konur og karla vaxa og blómstra í gegnum jógaiðkunina. Mér finnst mjög gaman að sjá jógasamfélagið stækka og dafna. Þegar ég var úti í London að læra að kenna Kundalini jóga var enginn hér að kenna þetta form af jóga. Við hittumst í hvert skipti eldsnemma á morgnana, gerðum jóga og sungum saman möntrur áður en kennsludagurinn hófst. Mig dreymdi um að vera hluti af þannig samfélagi hér heima. Og nú er það orðið að veruleika. Það eru um 60 manns núna í námi eða búnir að læra að kenna Kundalini jóga. Mér finnst mjög skemmtilegt að læra af þeim kennurum sem koma hingað að kenna í kennaranáminu. Og svo þessi heilagi tími dagsins sem ég á fyrir mig til að iðka jóga.
Hvað er erfiðast?
Að komast yfir að gera allt, að samþætta vinnu og fjölskyldu og huga og hjarta. Yogi Bhajan, meistari í Kundalini jóga sagði alltaf að æðsta form af jóga væri hjónabandið. Það má því segja að jógaiðkunin sé eins konar æfing fyrir lífið sjálft. Að halda í styrkinn og æðruleysið í gegnum það sem lífið færir okkur, hvað sem á dynur. Það tekst ekki alltaf. Þar liggur mesta ögrunin; það er bæði það sem er erfiðast og skemmtilegast.
Hvað hvetur þig áfram ?
Mér finnst mjög skemmtilegt að gera það sem ég geri og finnst það forréttindi að fá að deila þessari praktísku visku með þeim sem vilja njóta hennar með mér. Jóga kennir okkur að hlusta á líkamann og vera í góðu sambandi við það hvernig okkur líður. Við lærum að hlusta á innsæið og að rækta okkar innri mann. Kundalini jóga sérstaklega, er byggt upp til að gefa okkur innri styrk svo við getum staðist streitu og álag. Allt þetta er eitthvað sem mér finnst að ætti að vera kennt í skólum. Og eitthvað sem er mikil þörf fyrir í samfélaginu.
Hvað er framundan hjá þér um þessar mundir?
Um þessar mundir stendur kennaranámið yfir og um helgina kemur kennarinn okkar til landsins. Hún ætlar líka að vera með mjög spennandi námskeið fyrir konur undir yfirskriftinni “ÉG ER KONA – SKAPANDI, HEILÖG, ÓSIGRANDI þann 19. og 20. mars. Kundalini jógafræðin búa yfir mjög gagnlegri visku fyrir konur á öllum aldri sem mér finnst að allar konur þyrftu að kynna sér. Við vorum líka með jógatíma á Alþjóða kvennadaginn, tileinkaðan konum. Það var fín þátttaka og mjög notaleg stund.
Eitthvað að lokum?
Já, nú þarf ég líka að fara að koma mér í að gera jógað mitt svo ég verði búin áður en ég fer að kenna hádegistímann. Ég er að gera kríu (jógaæfingar) í 40 daga, sem hafa það markmið að styrkja áruna og hugleiðslu sem er til að brenna upp innri reiði. Hún færir mig alltaf inn í hjartað.








