Heimasíða vikunnar - Jafnréttisstofa - Fréttir
21.3.2011
Heimasíða vikunnar - Jafnréttisstofa
Heimasíða vikunnar er síða Jafnréttisstofu www.jafnretti.is sem er staðsett á Akureyri. Jafnréttisstofa var opnuð á Akureyri í september 2000.
Hún annast stjórnsýslu á sviði jafnréttismála á Íslandi í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008 og heyrir undir yfirstjórn félagsmálaráðherra. Hlutverk Jafnréttisstofu er skilgreint í 4. grein jafnréttislaganna.
Helstu verkefni stofunnar eru söfnun og miðlun upplýsinga um jafnrétti kynjanna, fræðsla og ráðgjöf til einstaklinga, félaga, fyrirtækja, stofnana og stjórnvalda á öllum stigum, auk þróunarstarfs, rannsókna og eftirlits með lögunum.
Á síðunni má finna ýmsar upplýsingar tengdar jafnréttismálum, fréttir, útgáfu og um ýmis verkefni sem stofan tekur þátt í.
Starfsfólk stofnunarinnar eru sjö talsins en framkvæmdastýra Jafnréttisstofu er Kristín Ástgeirsdóttir.
Allar nánari upplýsingar eru á síðunni www.jafnretti.is








