Ný stofnun fyrir konur - Un Women - Fréttir
25.3.2011
Ný stofnun fyrir konur - Un Women
Frjáls félagasamtök og kvennahreyfingar um allan heim hafa barist fyrir því áratugum saman að Sameinuðu þjóðirnar leggi meiri áherslu og setji meira fjármagn í jafnréttismál og málefni kvenna, en hingað til hafa aðildaríkin einungis lagt eitt prósent af heildarfjármagni Sameinuðu þjóðanna í jafnréttismál.
Þrotlaus barátta þúsunda kvenna hefur nú skilað árangri. Á allsherjarþingi Sþ síðastliðið sumar var tilkynnt um stofnun UN Women.
UN Women samanstendur af fjórum minni stofnunum innan Sþ sem allar höfðu það að leiðarljósi að vinna að jafnréttismálum og má þar á meðal nefna UNIFEM, þróunarsjóð Sþ í þágu kvenna. Helstu áherslur UN Women verða áfram afnám ofbeldis gegn konum, aukin mannréttindi, friður og öryggi, leiðtogaþjálfun og þátttaka kvenna í atvinnulífinu, efnahagsleg valdefling kvenna ásamt því að vinna áfram að þúsaldarmarkmiðunum.
Landsnefnd UNIFEM á Íslandi hefur verið starfrækt hér á landi í yfir 20 ár og þrátt fyrir nafnabreytinu og áherslu breytingar hið ytra er lítil breyting á starfsemi landsnefndarinnar. Þrjár áherslur íslensku landsnefndarinnar eru: réttindagæsla, vitundarvakning og fjáröflun.
Helsta fjáröflunarleið UN Women á Íslandi heitir Systralagið sem miðar af því að Íslendingar styðji við bak „systra“ sinna víðsvegar um heiminn með mánaðarlegum greiðslum. Allt söfnunarfé sem safnast á Íslandi rennur beint til Styrktarsjóðs UN Women til afnáms ofbeldis gegn konum. Sjóðurinn er sá fjársveltasti innan Sþ en á sama tíma sá eftirsóttasti og því miður nær UN Women aðeins að styrkja þrjú prósent þeirra umsókna sem í sjóðinn sækja en á síðasta ári studdi sjóðurinn 26 verkefni sem hljóðuðu upp á 20 milljónir Bandaríkjadala. Þau verkefni sem styrkt eru að sjóðnum tengjast einna helst líkamlegu- og kynferðislegu ofbeldi gegn konum.
Michelle Bachelet, fyrrverandi forseti Chile var ráðin framkvæmdastýra UN Women og er óhætt að segja að miklar vinir séu bundar við ráðningu hennar. Hennar helsta verkefni er að tvöfalda núverandi fjármagn UN Women úr rúmlega 200 milljónum í 500 milljónir dollara.
Inga Dóra Pétursdóttur, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi tók við starfinu í maí á síðasta ári af Steinunni Gyðu- og Guðjónsdóttur sem hóf störf fyrir UN Women í Japan.
Inga Dóra er þróunarfræðingur að mennt og hefur meðal annars unnið fyrir Sþ í Gvatemala og fyrir Þróunarsamvinnustofnun Íslands í Malaví og dvalið um árabil í Bandaríkjunum, Spáni og Ghana.
Ásamt henni starfar á skrifstofunni Hanna Eiríksdóttir, verkefnastjóri.
Sjá má nánari upplýsingar á vefnum www.unwomen.is

UN Women á Íslandi var í samstarfi við Kitty von Sometime listahópinn þegar stofnun UN Women var fagnað þann 8.mars síðastliðinn.








