Heimasíđa vikunnar - Félag kvenna í atvinnurekstri - Fréttir
28.3.2011
Heimasíđa vikunnar - Félag kvenna í atvinnurekstri
Heimasíða vikunnar að þessu sinni er síða Félags kvenna í atvinnurekstri www.fka.is
FKA er félag kvenna í atvinnurekstri og er markmið félagsins eftirfarandi:
- Að sameina konur í atvinnurekstri. og efla samstöðu þeirra og samstarf.
- Að stuðla að aukinni miðlun á viðskiptatengdum fróðleik milli félagskvenna, jafnt innlendum sem erlendum.
- Að hvetja til viðskipta á milli FKA kvenna.
- Að auka sýnileika og tækifæri kvenna í viðskiptalífinu, og einnig að stuðla að virðingu og verðskuldaðri athygli samfélagsins á framlagi fyrirtækja sem rekin eru af konum.
- Að hvetja konur til fumkvöðlastarfa.
Starfsemi félagsins byggir á ýmsum þáttum, fundum, vetvangsferðum, útgáfu og skipulögðum ráðstefnum og fundum.
- Reglulegir fundir yfir vetrarmánuðina, þar sem boðið er upp á fyrirlestra um áhugaverð málefni, er nýst geta konum í atvinnurekstri.
- Vettvangsferðir t.d. í fyrirtæki og stofnanir, þar sem blandað er saman fróðleik og skemmtun.
- Skipulagðar ráðstefnur með ýmsum viðskiptatengdum fróðleik og kynningum.
- Útgáfa fréttablaðs með greinum um konur í atvinnurekstri.
- FKA velur árlega aðila (einstakling, félag eða stofnun) sem skarað hefur framúr í störfum sínum í þágu kvenna og veitir þeim viðurkenningu við hátíðlega athöfn.
- Rekin er heimasíða með ýmsum upplýsingum og fróðleik.
- Upplýsingamiðlun milli félagskvenna.
- Samstarf við alþjóðleg samtök kvenna í atvinnurekstri sem auðveldar aðgang að alþjóðlegum mörkuðum, ráðstefnum og tengslum við sambærileg félög um allan heim.








