Þjóðlegt eldhúshjá KRFÍ - Fréttir
29.3.2011
Þjóðlegt eldhúshjá KRFÍ
Þjóðlegt eldhús verður á sínum stað á Hallveigarstöðum, síðasta fimmtudag mars mánaðar, þ.e. nk. fimmtudag kl. 19.00. Að þessu sinni verður matur frá Perú kynntur. Þjóðlegt eldhús er samstarfsverkefni Kvenréttindafélags Íslands og Félags kvenna af erlendum uppruna.
Allir eru velkomnir að vera með á matarkvöldunum. Skráning fer fram á netfanginu maria@womeniniceland.is. 800 kr. greiðast við innganginn og er í þeim innifalinn matur, kaffi og vatn. Gos og léttvín er hægt að kaupa gegn vægu verði.
Þjóðlega eldhúsið er senn að renna sitt skeið á enda. Að öllum líkindum verður síðasta matarkvöldið haldið síðasta fimmtudag í apríl og því fer hver að verða síðastur að kynna sér framandi matarmenningu í þessu skemmtilega samstarfsverkefni.








