Hönnun í útflutning - Fréttir
30.3.2011
Hönnun í útflutning
Íslandsstofa, Hönnunarmiðstöð Íslands, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Samtök iðnaðarsins auglýsa eftir umsóknum fyrirtækja um þátttöku í þróunarverkefninu Hönnun í útflutning. Markmið verkefnisins er að leiða saman hönnuði og fyrirtæki í samvinnu um hönnun og framleiðslu á útflutningsvörum. Þátttakendur í verkefninu munu fá framlag að upphæð 500.000 kr. til að standa straum af hönnunarkostnaði, gegn a.m.k. jafnháu mótframlagi fyrirtækisins.
Tilgangur verkefnisins og áherslur eru eftirfarandi:
-
að leiða saman framleiðendur og hönnuði, innleiða sýn hönnunar við vöruþróun og efla þátt hönnunar innan fyrirtækja
-
auka innlenda framleiðslu á útflutningsvörum hjá framleiðslufyrirtækjum í útflutningi, skapa ný tækifæri í útflutningi, nýta hugvit, hráefni og framleiðslumöguleika.
-
hvetja fyrirtækin til að hefja útflutning þó þau hafi einungis selt á heimamarkaði til þessa.Þar mun Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra opna sýninguna og Jón Ásbergsson kynna verkefnið. Að lokinni dagskrá verða léttar veitingar í boði samstarfsaðila. Þar skapast einstakt tækifæri fyrir hönnuði og fyrirtæki að hittast.
Verkefnið var kynnt samhliða foropnun 10+ sýningar félags húsganga- og innanhús arkitekta, á HönnunarMars miðvikudaginn 23. mars kl. 17:30 að Grandagarði 16. Verkefnið stendur í 7 mánuði frá því að þátttakendur hafa verið valdir og verða niðurstöðurnar kynntar á sérstakri sýningu. Umsóknarfrestur fyrirtækja er til 27. apríl nk. Þeir sem hafa hug á að skrá sig á opnunina eru hvattir til að gera það sem fyrst í síma 511 4000 eða með tölvupósti, islandsstofa@islandsstofa.is.
Nánari upplýsingar og umsóknir má finna hér á vefsíðu Íslansstofu. Móttaka umsókna er hjá Birni H Reynissyni verkefnisstjóra, bjorn@islandsstofa.is, Hermanni Ottóssyni forstöðumanni, hermann@islandsstofa.is Upplýsingar má einnig nálgast í síma 511 4000. Hönnuðum er velkomið að hafa samband við Hönnunarmiðstöð Íslands til að fá nánari upplýsingar um verkefnið í síma 771 2200.
(Tekið af heimasíðu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands)








