Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Góđur svefn er mikilvćgur - Fréttir

4.4.2011

Góđur svefn er mikilvćgur

Góður svefn er mikilvægur fyrir heilsu okkar og líðan.  Flestir upplifa svefntruflanir einhverntíma á æfinni.  Ekki er skaðlegt að Erla Gerður missa svefn stöku sinnum en ef svefntruflanir eru langvarandi er hætta á að  heilsan fari að gefa eftir. Hér koma nokkrar hugleiðingar um svefninn.

 Hvað þarf ég að sofa mikið ?

Svefnþörf er mismikil milli einstaklinga. Flestur þurfa 7-8 klst svefn, aðrir 6 eða 9 klst. Ef við þurfum lengri svefn en 9 klst þurfum við meðal annars að huga að því hvort við erum í nægilega góðu líkamlegu formi eða kanna andlega líðan betur.  Ef við sofum að jafnaði minna en fjórar klst um nætur fer það að bitna á heilsu okkar og líðan. Flestum er eiginlegt að sofa frá miðnætti til morguns.

Orsök svefntruflana

Algengasta orsök svefntruflana eru óheppilegar svefnvenjur.  Umhverfisþættir hafa einnig mikil áhrif á gæði svefns. Ýmsir líkamlegir og andlegir sjúkdómar geta truflað svefn svo sem verkir, kvíði og þunglyndi. Kæfisvefn og aðrir svefnsjúkdómar  sem eru sjaldgæfari geta líka verið til staðar. Við meðferð á svefntruflunum er mikilvægt að komast að því hver orsökin er og lagfæra svefninn út frá því. Læknisviðtal er besta greiningaraðferðin til að finna eðli vandans. Í vissum tilvikum getur þurft að gera mælingar á svefni til að greina orsök svefntruflana betur.

Meðferð við svefntruflunum

Greina  þarf undirliggjand orsök svefntruflana og meðhöndla á viðeigandi hátt. Í öllum tilvikum er mikilvægt að laga svefnvenjur og bæta umhverfi eins og kostur er. Mjög gagnlegt getur verið að læra slökun. Ýmsar leiðir eru þar mögulegar og um að gera að skoða hvaða aðferð hentar hverjum og einum. Sálfræðimeðferð svo sem hugræn atferlismeðferð skilar góðum árangri. Svefnlyf geta hjálpað til að rjúfa vítahring svefnleysis en ætti ekki að nota í langan tíma samfleytt.

Í síðasta pistli eru talin upp nokkur góð ráð til að bæta svefnvenjur. Með von um að þessi ráð hjálpi til við að bæta svefninn og auka lífsgæðin.  Mikilvægt er að leita aðstoðar ef um langvinna svefntruflun er að ræða.

Erla Gerður Sveinsdóttir

Læknir Heilsuborg


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk