Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Norđlenskt atvinnulíf kallar á atvinnu- og nýsköpun - Fréttir

13.4.2011

Norđlenskt atvinnulíf kallar á atvinnu- og nýsköpun

Nokkrir atvinnurekendur á Norðurlandi hafa tekið sig saman og sett af stað
verkefni um vinnuhelgi almennings sem snéri að atvinnu-og nýsköpun í landinu. Til liðs við
frumherjana gengu Háskólinn á Akureyri og Tækifæri hf og mun því fyrsta Nýsköpunarhelgin
íta dagsins ljós þann 15.-17. apríl nk. í Háskólanum á Akureyri, en áætlað er að þetta verði að
árvissum viðburði.

Einstaklingar með hugmyndir um atvinnu- og nýsköpun býðst að koma saman til að skapa
ný störf í samfélaginu, hvort heldur sem um er að ræða í starfandi fyrirtækjum eða í nýjum
fyrirtækjum. Þáttaka er ókeypis og opin öllum eldri en 18 ára, hvaðan sem er af landinu, en
skráning á helgina er á vefsíðunni www.ana.is.

Markmiðið er að fá fólk til að koma saman og vinna að nýjum eða gömlum hugmyndum sem
gætu endað sem fyrirtaks viðskiptaáætlun og avinnuskapandi verkefni. Dagskráin byggist
á fólkinu sem það er með í hóp, hugmyndinni og framgangi hennar. Stutt erindi eru flutt til
fræðslu og hvatningar við vinnuna og er því um vinnustofu að ræða frekar en fyrirlestraröð.

Helgin opnar kl. 17:30 á föstudeginum en byrjar formlega kl. 18:00 og stendur til kl 23:00 um
kvöldið. Á laugardaginn verður opið frá 9-22 og á sunnudaginn 10-18. Helgin endar síðan á
því að valin er verðlaunahugmyndir  og fá þær hugmyndir veglegan styrk að launum.
Innovit hefur verið fengið til sýra verkefninu ásamt því að fjölmörg fyrirtæki hafa lagt
verkefninu lið til að gera helgina að veruleika.


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk