Gestastofa sútarans á Sauđárkróki - Fréttir
15.4.2011
Gestastofa sútarans á Sauđárkróki
Gestastofa sútarans er eitt af þeim verkefnum er hlaut styrk árið 2009. Gestastofan er staðsett á Sauðárkróki í húsnæði Sjávarleðurs sem er eina fyrirtæki landsins sem sútar fiskiroð. Í tengslum við fyrirtækið er fyrirhugað að koma á laggirnar safni um sögu sútunar á Íslandi. Í gestastofunni má sjá vörur úr sjávarleðri auk þess sem þar er hægt að kaupa leður. Sigríður Káradóttir er hugmyndasmiðurinn á bak við hugmyndina.
Segðu aðeins frá sjálfri þér – hver er konan/konurnar á bak við fyrirtækið?
„Sigríður Káradóttir, er fædd og uppalin á Sauðárkróki, ég er gift Gunnsteini Björnssyni framkvæmdastjóra Sjávarleðurs og saman eigum við fjögur börn á aldrinum 15 – 25 ára. Ég hef undanfarin ár unnið hjá Sjávarleðri en sl vor opnaði ég Gestastofu Sútarans.“
Hvernig fékkstu hugmyndina að Gestastofu sútarans?
„Upphaflega kom hugmyndin frá Finni Árnasyni, stjórnarformanni Sjávarleðurs og Loðskinns, að koma hér á fót gallerýi þar sem fólk gæti komið og keypt hjá okkur það sem við erum að framleiða. Mér fannst þetta ekkert sniðugt til að byrja með og ætlaði ekki að fara að þjónusta svoleiðis inni í verksmiðju. Hugmyndin var því lögð til hliðar og þróaðist þó alltaf með okkur einhvern veginn þangað til við ákváðum að taka hana fram aftur og gera eitthvað gott úr henni. Ekki síst vegna þess að við fundum fyrir því að fólk var að koma til okkar á skrifstofuna og spyrja eftir því hvort það gæti ekki keypt sér efni hér, eða fengið að skoða verksmiðjuna. Eins voru heimamenn mikið að koma hingað og fá að sýna gestum sýnum þessa verksmiðju. Við vorum því kominn að þeim tímapunkti að annað hvort þyrftum við að taka alveg fyrir þessar heimsóknir eða bjóða upp á þessa þjónustu með markvissari hætti. Gamla hugmyndin var því dregin fram og í janúar 2010 stofnaði ég félagið Gestastofa Sútarans og þann 4. júní opnaði ég stofuna. Tók svolítið íslensku leiðina á þetta.“
Hvernig hefur gengið að koma verkefninu á laggirnar?
„Framvindan hefur verið nokkuð góð að ég tel, en það ber að hafa í huga að engin fyrirmynd er til í okkar landi af þessu hér á landi þar sem þetta er opnað innan veggja einu sútunarverksmiðjunnar á Íslandi. Mikill áhugi var hjá fjölmiðlum á Gestastofu Sútarans síðastliðið sumar og hjálpaði það mikið“.
Hvað er skemmtilegast og hvað er erfiðast?
„Skemmtilegast er að finna og sjá hversu vel verkefnið dafnar og vex, og að sjá og heyra hversu mikill áhugi er á Gestastofu Sútarans.
Erfiðast…..humm…. kannski mætti segja að það muni vera það að geta ekki ennþá verið bara að vinna að Gestastofunni, heldur þurfa að vera líka í „hinni“ vinnunni!“.
Hvað hvetur þig áfram?
„Það er ekki spurning að hvatningin felst lang mest í því hversu gestirnir okkar eru ánægðir og gríðarlega áhugasamir um það sem við framleiðum hjá Sjávarleðri og Loðskinni. Gestastofa Sútarans er innan veggja 4000 fermetra verksmiðju Loðskinna og gefst gestunum okkar kostur á að fara í skoðunarferð í gegnum verksmiðjurnar og sjá hvernig sútun og litun fer fram, þetta hefur vakið gríðar mikla athygli og áhugi og þakklæti gestanna okkar er svo hvetjandi, svo hef ég líka fundið fyrir mjög miklum meðbyr hér heima í héraði og er það bara dásamlegt og hvetjandi.“
Hvað er framundan hjá Gestastofunni?
„Framundan eru spennandi tímar og meiri framkvæmdir, en við höfum fengið boð um að gera Gestastofuna að svokallaðri hagleikssmiðju. Upphafleg hugmynd að þessum smiðjum kemur frá Kanada þar sem þetta er kallað economuseum en búið að opna eina smiðju á Djúpavogi undir nafninu Arfleifð. Verkefnið gengur út á að gesturinn geti komið og séð hverju er verið að vinna að og í raun séð handverkið verða til frá grunni og þar til það kemur út sem fullunnin vara. Þetta smellpassar fyrir okkar verksmiðju en til þess að geta tekið þátt þurfum við að setja upp sýningu um sögu sútunnar sem aftur á móti kostar að við þurfum að stækka Gestastofuna og er það eitthvað sem við erum að vinna að þessa dagana.
Þetta höfum við unnið í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands en auk þess hefur Atvinnuþróun SSNV, Menningarsjóður KS og Sveitarfélagið Skagafjörður styrkt verkefnið. Eins eru hugmyndir um að koma vinnustofu fyrir listamenn uppi á lofti, bæði fyrir erlenda hönnuði sem innlenda og handverksfólk sem getur komið og unnið úr hráefni okkar hér á staðnum, en það er framtíðarmúsikin í þessu öllu.“
Eitthvað að lokum?
„Já, kannski bara það að fram komi það hversu gríðarlega mikil aðstoð og hvatning felst í því að hljóta styrki til verkefna eins og hjá atvinnumálum kvenna þegar verið er að fara af stað með svona nýsköpun. Það skiptir sköpum í mörgum tilfellum hvort hugmyndin lifir eða deyr, ég segi bara takk fyrir mig!“
Ýmsar spennandi hönnunarvörur má finna í Gestastofunni.








