Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Dokkan miđlar ţekkingu og hugmyndum - Fréttir

18.4.2011

Dokkan miđlar ţekkingu og hugmyndum

Martha Árnadóttir er stofnandi Dokkunnar sem er faglegt þekkingar og tengslanet sérfræðinga, fræðimanna og fagfólks, sem Martha Árnadóttirvill miðla sín á milli þekkingu, lausnum, hugmyndum, reynslu og leitast við um leið, að stuðla að lærdómi milli fyrirtækja, atvinnugreina og sviða samfélagsins. Í Dokkunni er árangursríkum aðferðum miðlað og þeim komið á framfæri á skipulagðan hátt.
Okkur langaði að vita meira um þennan nýja vettvang og tókum hús á stofnanda Dokkunnar, Mörthu Árnadóttur.

Hver er Martha ?

„Martha er fædd og uppalin á Ísafirði – ólst upp hjá ömmu sinni og afa, sem hugsuðu um ungann  þar til hann flaug út hreiðinu 16 árum síðar  - fór einn síns liðs til Reykjavíkur og hóf lífið fyrir alvöru – eða þannig – úpss... margar byltur og gangstéttarbrúnir til að reka tærnar í höfuðborginni...  

Ég á tvær yndislegar dætur og við hjónin eigum samtals 5 barnabörn sem eru algjörir gleðigjafar.

Annars má segja að Dokkan eigi alla mína orku, tíma og eldmóð þessi misserin og ég sé mest af öllu eftir að hafa ekki fyrir löngu stofnað mitt eigið fyrirtæki – á alveg sérlega vel við mig og ég skemmti mér stórvel á hverjum degi – og ef það er eitthvað sem kveikir bál innra með mér þá er það þegar Dokkan nær markmiðum síðum og ég get sett okkur ný markmið að keppa að.

Ég er mjög einbeitt  og ákveðin en samt doldið óútreikanleg – doldið eins og kötturinn sem er ákveðinn í að fara sínar eigin leiðir.

Ég stunda líkamsrækt af krafti  - var svo heppin að ánetjast fyrir um 2 árum – þar á undan var þetta óttalegt dútl  - stundum og stundum ekki.... oftast lítið og létt.“

Hvernig fæddist hugmyndin að Dokkunni?

Dokkan byggir á hugmyndafræðinni um að „tengjast“ (deila með sér) (e. mesh), sem er að ryðja sér til rúms mjög víða um heim. Enska orðið "mesh" þýðir möskvi og margir möskvar mynda net. Í tilfelli Dokkunnar tengjum við þekkingu, lausnir, hugmyndir og reynslu í gegnum sérfræðinga, fræðimenn og annað fagfólk. Í samfélögum nútímans má segja að allt þetta - þekking, lausnir af ýmsu tagi, góðar hugmyndir sem geta orðið að veruleika sé rétt haldið á málum, prófaðar aðferðir og reynsla - sé gríðarlega verðmætt en að sama skapi má einnig halda því fram að allt þetta sé vannýtt - eða jafnvel illa nýtt.

Stefna Dokkunnar er að byggja upp öflugasta þekkingarnet á Íslandi, þar sem hagnýtri og fræðilegri þekkingu er deilt og miðlað til hagsbóta fyrir viðskipta- og atvinnulíf og samfélagið allt - með því að tengja fagfólk á öllum sviðum.

Hvaða ávinning hefur fólk af því að tengjast Dokkunni?

„Með því að tengjast Dokkunni er hægt að efla þekkingu á mörgum sviðum og tækifæri til að eflast í leik og starfi. Dokkan er þannig fyrir þá sem vilja beita faglegum aðferðum, fá upplýsingar um nýjar nálganir og aðferðir og koma sínum eigin hugmyndum á framfæri og miðla þeim. Endur- og símenntun er stór þáttur í okkar starfi en með öflugri endurmenntun er hægt að fá dýpri fagþekkingu á því sem við erum að fást við hverju sinni.
Að lokum má nefna að með því að tengjast Dokkunni er hægt að efla og stækka tengslanetið en það er mjög mikilvægur þáttur í nútíma rekstri.“

Hvernig gerist maður meðlimur Dokkunnar?

„Í langflestum tilfellum eru það fyrirtæki og stofnanir sem gerast aðilar að Dokkunni með greiðslu tiltekins árgjalds sem ræðst af starfsmannafjölda. Um leið og fyrirtæki eða stofnun hefur gerst aðili fá allir starfsmenn fullan aðgang að öllu starfi faghópa hennar sér að kostnaðarlausu. Nokkur fagsvið eru innan Dokkunnar og má þar nefna áhættustýringu, fjármál og rekstur, fjölmiðla, gæðastjórnun, hugbúnaðarprófanir og hönnun hugbúnaðar, mannauðsstjórnun, markaðsmál, stefnumótun, stjórnsýsla, verslun og þjónusta svo nokkuð sé nefnt.“

Hvað er framundan hjá Dokkunni?

„Framundan er enn frekari uppbygging og aftur uppbygging – það eru svo gríðarlega mikil tækifæri á Íslandi í dag og þekkingarsviðið mun á næstu árum verða mikilvægara en nokkru sinni.

Einnig erum við að þróa Dokkurtorgið en markmiðið með því  er fyrst og fremst að útvíkka núverandi starfsemi Dokkunnar yfir á rafrænan vettvang, til að starfsfólk aðildarfyrirtækja Dokkunnar hafi aðgang að fagefni, efni frá fundum Dokkunnar, vefsíðum, myndböndum og greinum á viðkomandi fagsviði. Allir félagar í viðkomandi þekkingarhópi geta sett inn efni á Dokkutorgið. Félagar geta einnig spjallað saman, gert athugasemdir og sett inn viðburði sem eru framundan á viðkomandi fagsviði.

Dokkutorginu er ætlað að þjóna viðskiptavinum Dokkunnar sem eins konar innri vefur og vera vettvangur faglegrar umræðu sérfræðinga, fagfólks og fræðimanna á netinu.

Óhætt er að fullyrða að Dokkutorgið er einstakt í sinni röð á Íslandi og þeir sem til þekkja hafa kallað torgið "Facebook" sérfræðinga.“

Að lokum

„Ég er stundum spurð að því hvort Dokkan muni fara út í það að halda og reka námskeið eða annað nám af einhverju tagi – og ég svara því alltaf þannig að ef Dokkan telur eitthvert efni nógu spennandi eða mikilvægt og engin annar er að sinna því – nú eða að við teljum okkur geta gert betur – þá gerum við það!.“

Nánari upplýsingar um Dokkuna má finna á heimasíðunni www.dokkan.is  og einnig má finna Dokkuna á facebook.

Þúsundasti notandinn

Þúsundasti notandi Dokkunnar !

 


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk