Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Úthlutun styrkja til atvinnumála kvenna - Fréttir

26.4.2011

Úthlutun styrkja til atvinnumála kvenna

Föstudaginn 29.apríl verður styrkjum til atvinnumála kvenna úthlutað en 30.milljónir voru til umráða að þessu sinni.

Ráðgjafanefnd hefur farið yfir umsóknir á undanförnum vikum og munu 42 konur fá úthlutað styrkjum. Óhætt er að segja að fjölbreytni verkefna sé mikil og ljóst að mikill kraftur er í nýsköpun kvenna um þessar mundir.

Úthlutunin fer fram í Víkinni – Sjóminjasafni og mun Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, afhenda styrkina. Auk þess munu þær Fjóla Björk Karlsdóttir, eigandi Samráðs og Jóna Björg Sætran, markþjálfi og eigandi Námstækni, halda fræðsluerindi fyrir frumkvöðlakonur.  Að lokum verður boðið upp á léttar veitingar.

Listi með nöfnum styrkhafa mun verða aðgengilegur á heimasíðunni eftir úthlutun.


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk