Virkjum karla og konur til athafna - Fréttir
9.5.2011
Virkjum karla og konur til athafna
Alþjóðaráðstefna Félags kvenna í atvinnurekstri (FKA) í samstarfi við Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica 13.maí 2011.
Ráðstefnunni er ætlað að ýta undir umræðu um kynjahlutföll í stjórnun en lög um kynjakvóta munu taka gildi hér á landi árið 2013.
Tveir erlendir fyrirlesarar verða með framsögu, þær Mari Teigen og Benja Stig Fagerland.
Mari Teigen er doktor í félagsfræði og rannsóknarstjóri hjá Rannsóknarstofnun í félagsvísindum í Osló.
Benja Stig Fagerland er eigandi Talent Tuning sem einblínir á viðmið og stefnur kvenhagfræðinnar (e. womenomics) auk þess sem hún aðstoðar fyrirtæki við að finna konur í stjórnir.
Þá mun Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans ræða um nýja stjórnarhætti og Liv Bergþórsdóttir framkvæmdastjóri Nova um reynslu af stjórnarsetu í erlendu fyrirtæki.
DAGSKRÁ
8.15 Húsið opnar - Létt morgunverðarhlaðborð
8.30 Ávarp Árna Páls Árnasonar, efnahags- og viðskiptaráðherra
8.40 Mari Teigen: Gender Quotas in Corporate Boards: The Norwegian Experiences
9.10 Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans: Ný stefna - Nýtt hugarfar
9.25 Liv Bergþórsdóttir, framkvæmdastjóri Nova: Við leitum að konu í Bogamerkinu
9.40 Benja Stig Fagerland: Women Mean Business!
10.10 Dagskrárlok
Fundarstjórn:
Rakel Sveinsdóttir hjá CreditInfo Group og Ásbjörn Gíslason forstjóri Samskipa
VINNUSTOFUR
Opni Háskólinn, HR, Menntavegur 1
13:00-14:00 Benja Stig Fagerland: The road to the board room
14:10-15:00 Berglind Ósk Guðmundsdóttir, lögfræðingur hjá KPMG: Hlutverk, ábyrgð og skyldur stjórnarmanna
15:10-16:10 Mari Teigen: The ideal practises about gender quotas
Fjöldi þátttakenda í vinnusmiðjur er takmarkaður
BJÓÐUM Á STEFNUMÓT:
Kona og karl sem koma saman greiða eitt ráðstefnugjald eða 5.900 krónur, morgunverður innifalinn. Þátttökugjald í vinnustofur er 3.900 krónur
Ráðstefnan er haldin í samstarfi við:
CREDITINFO GROUP
EFNAHAGS- OG VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ
ICELANDAIR
HÁSKÓLINN Í REYKJAVÍK
HILTON REYKJAVIK NORDICA
IÐNAÐARRÁÐUNEYTIÐ
LANDSBANKINN
NORSKA SENDIRÁÐIÐ
SÝNUM FJÖLBREYTNI Í FORYSTU!
Skráning á:









