Bjartsýn á framtíđ hönnunar - Fréttir
15.9.2011
Bjartsýn á framtíđ hönnunar
Anna Jóhannesdóttir er einn styrkhafa ársins 2011 en hún fékk styrk til að þróa roð úr íslensku tilapíuroði sem er aukaafurð úr íslenska tilapiu-eldinu. Anna rekur fyrirtækið AJ Leðursaumur í Skagafirði þar sem hún hannar og framleiðir hágæða alíslenskar hönnunarvörur.
Fyrirtækið hefur nú þegar gott orðspor á sviði vinnslu og hönnunnar ýmissa nytjahluta úr leðri, roði og skinnum.
Hver er konan ?
Ég er 54 ára gömul, fyrrverandi bóndi og núverandi handverkskona og hönnuður. Ég lauk landsprófi við Héraðsskólann á Laugavatni og hef sótt ýmiss hönnunar- og handverksnámskeið ásamt því að hafa lokið brautagengisnámskeiði. Ég er gift Þórólfi Péturssyni og á með honum þrjú börn, þau Sæunni Kolbrúnu masternema í skipulagsfræði, Helgu Björgu líffræðing og Pétur Óla nema við rafvirkjun.
Fjölskyldan hefur öll brennandi áhuga á hestamennsku og því sem snýr að henni, útivist, ásamt því sem börnin hafa fylgt móður sinni í áhuga á hönnun og vinnslu íslenskt handverks og taka þau virkan þátt í hugmyndavinnu og markaðssetningu varanna.
Hvernig kviknaði hugmyndin að verkefninu?
Síðastliðið sumar fengum við heimsókn frá eigendum tilapíufiskeldisins að Fellsmúla þar sem þær sáu vörur sem við vorum að hanna úr innfluttu tilapíu leðri. Þær lýstu yfir áhuga á samvinnu varðandi frekari þróun á leðri úr fiskroði sem fellur til í þeirra eldi og þannig byrjaði samstarf okkar. Það er mikilvægt að geta nýtt íslenskt hráefni í okkar vinnu en með því sparast ýmiss kostnaður og neikvæð umhverfisáhrif sem fylgja innflutningi á leðri.
Hvað er það sem hvetur þig mest áfram í þinni vinnu og hvað er erfiðast?
Það sem hvetur mig áfram er þörfin fyrir að skapa og vinna úr fjölbreyttum og fallegum efnum svo úr verði íslenskt gæða handverk.
Það sem er erfiðast við að vera frumkvöðull er skortur á fjármagni til að hanna og markaðsetja nýjar vörur. Einnig hamlar það að höfundarréttur nýrra hönnunarvara er ekki nægilega virtur hérlendis og skortur er á úrræðum til verndar.
Hvað er framundan hjá fyrirtækinu ?
Næstu skref er að vinna áfram hugmyndir að nýjum vörum úr tilapiuleðrinu en áætlað er að þróunarvinna standi í sumar og framleiðsla á vörum muni hefjast í ágúst.
Þessa dagana erum við að teikna og útfæra nýjar hugmyndir af fylgihlutum úr Tilapíuroði sem við eigum svo eftir að þróa áfram. Mörg skref þarf að stíga í þróunarvinnunni sem er tímafrek en mjög mikilvæg og á eflaust eftir að taka miklum breytingum áður en til framleiðslu kemur.
Framundan hjá okkur eru ýmsir viðburðir og sýningar sem við tökum þátt í eins og Landsmót hestamanna á Vindheimamelum þar sem við verðum við með sölubás og er undirbúningur í algleymingi. Við erum einnig að opna gallerí þar sem fólk getur komið og verslað en einnig tökum við á móti sérpöntunum en algengt er að pantað sé fyrir fermingar, afmæli og ýmsar uppákomur. Ég er bjartsýn á framtíð íslensks hugvits og hönnunar en mikil gróska virðist vera á þeim vettvangi.
Ég vil nota tækifærið og þakka atvinnumálum kvenna fyrir að hafa veitt okkur þennan myndarlega styrk en hann er okkur mikil hvatning og um leið einnig viðurkenning fyrir unnin störf.
Sjá má vörur Önnu á facebook síðu hennar https://www.facebook.com/#!/aj.ledursaumur

Handtaska úr lambsleðri og strútsfæti.

Handtaska úr tilapíu- og hreidýraleðri.

Belti úr laxaroði

Púðar úr hlýraroði, þæfðri ull með lambsleðri í bak.








