Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Hagleikssmiđjan opnar á Sauđárkróki - Fréttir

9.6.2011

Hagleikssmiđjan opnar á Sauđárkróki

Föstudaginn 10 júní kl.16.00 verður opnun önnur hagleikssmiðjan á Íslandi en hagleikssmiðja er fyrirtæki á sviði handverks GEstastofa1sem býður gestum að fræðast um sögu handverksins og þróun, hitta fólkið á bak við vörurnar og kynnast hönnuninni og framleiðsluferlinu.

Hagleikssmiðjan er sett upp að kanadískri fyrirmynd, en svokölluð Économusée (franska) eða Economuseeum (enska) eru rekin víða um Kanada til að varðveita handverk, aðferðir og þekkingu. Í samstarfi við önnur Evrópuríki er unnið að hagleikssmiðjum í Norður-Evrópu þar sem gestum gefst færi á að kynnast hefðum og siðum heimamanna og sýna þá möguleika sem felast í handverkinu og aðferðum.  Á Íslandi er það Nýsköpunarmiðstöð Íslands sem hefur umsjón með hagleikssmiðju verkefninu.

Þetta er önnur hagleikssmiðjan sem opnar á Íslandi, sú fyrsta var Arfleifð á Djúpavogi sem opnaði síðasta sumar.

Gestastofa sútarans er staðsett á Sauðárkróki í einu sútunarverksmiðjunni í Evrópu sem framleiðir leður úr fiskroði. Með gestastofunni er ferðamönnum og almenningi opnaður aðgangur að sútunarverksmiðju og afurðum hennar á óvenjulegan hátt. Boðið er upp á skemmtilega skoðunarferð um verksmiðjuna þar sem fylgst er með hvernig roð er sútað svo úr verður úrvals fiskleður.

Í verslun gestastofunnar gefst tækifæri til kaupa hönnun og handverk í nálægð við sjálfa uppsprettu hráefnisins. Hér getur þú einnig verslað leður og skinn beint frá sútara og fengið upplýsingar um vöruna frá fyrstu hendi.

Fiskleður hefur heillað hönnuði heimsþekktra vörumerkja eins og Prada, Dior og Nike. Komdu í gestastofu sútarans og kynnstu þessu sérstaka hráefni af eigin raun.

Tekið verður á móti gestum milli kl. 16.00-18.00 á morgun.

 Nánari upplýsingar um hagleikssmiðjur:

www.economusee.no

www.economusees.com

 GEstastofa 3

Frá Gestastofu sútarans

Gestatofa 2

 


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk