Starfið er stærsta áhugamálið - Fréttir
22.9.2011
Starfið er stærsta áhugamálið
Bryndís Guðmundsdóttir talmeinafræðingur er ein þeirra kvenna sem hlaut styrk atvinnumála kvenna árið 2011. Styrkurinn er til
vöruþróunar og markaðssetningar vegna verkefnisins ,,Lærum og leikum með hljóðin, þróun og framleiðsla á heildstæðu íslensku framburðarefni fyrir börn”. Um er að ræða fjölbreytt framburðarefni sem er ætlað börnum, foreldrum og fagfólki til að undirbúa rétta hljóðmyndun og styrkja undirbúningsfærni fyrir lestur. Málhljóðin í íslensku eru kynnt til sögunnar í sömu röð og barnið tileinkar sér hljóðin og þyngdarstigið eykst um leið og leikið er í skemmtilegum æfingum í bókum, spilum og myndbandsefni.
Hver er konan ?
Bryndís er talmeinafræðingur með áratuga reynslu í starfi með börnum og fullorðnum sem eiga við mál-talmein að stríða. Hún lauk M.A. námi frá Bandaríkjunum í talmeinafræði, með heyrnarfræði sem aukagrein. Sérsvið hennar liggja á sviðum er varða frávik í hreyfigetu og formgerð talfæra, framburði, tunguþrýstingi, skarði í gómi, raddvandamálum og taugafræðiskaða á tal og rödd, auk heyrnarleysis og kuðungsígræðslu. Hún hefur starfað með íslensku- og enskumælandi börnum, unnið í samstarfi við sjúkrahús, leik- og grunnskóla á Íslandi, auk þess að vera í samstarfi við aðra talmeinafræðinga hjá Talþjálfun Reykjavíkur. Hún rekur eigið fyrirtæki, Raddlist ehf. sem sinnir mennta- og heibrigðisþjónustu, auk útgáfu og þróunarstarfsemi. Bryndís er gift og á fjögur uppkomin börn og eitt barnabarn. Samvera og hreyfing með fjölskyldunni og þátttaka í samfélaginu í Reykjanesbæ, þar sem hún býr, hafa tekið mestan tíma síðustu árin. Eftir nám í Bandaríkjunum hefur hún sótt reglubundið starfsþjálfun og endurmenntun þangað og má segja að starfið sé stærsta áhugamálið, fyrir utan fjölskylduna. Lestur góðra bóka, annarra en fræðibóka og að njóta tónlistar er alltaf á lista yfir það sem hún vildi geta sinnt betur. Eftir að hún fékk golfsett í afmælisgjöf frá makanum fyrir tveimur árum, reynir hún af veikum mætti að finna tíma fyrir golfíþróttina.
Hvernig kom hugmyndin að verkefninu?
,,Ég nýti reynslu og þekkingu á sviði talmeinafræði til þróunar á ,,Lærum og leikum með hljóðin” segir Bryndís. Þróunarvinnan hófst á námsárunum í Bandaríkjunum í samstarfi við dr. Bernard Silverstein prófessor. Þegar ég kom heim úr námi var mjög lítið sérhæft íslenskt efni til sem unnt var að nota til greiningar og þjálfunar talmeina. Mjög mikill tími fer í undirbúning verkefna sem eru gjarna sérsniðin fyrir hvern og einn skjólstæðing. Varðandi hljóðmyndun og framburð vantaði efni sem hægt er að benda foreldrum og fagfólki með litla reynslu af framburði að nota til að örva og undirbúa rétta hljóðmyndun og hljóðkerfisþætti hjá börnum. Það þýðir þó alls ekki að ekki sé þörf á að leita til talmeinafræðinga en okkar vinna getur verið mjög markviss með því að nýta efnið í ,,Lærum og leikum með hljóðin” með foreldrum. Fyrstu útgáfunni var mjög vel tekið og það var hvatning til að halda áfram og ég stefni á fleiri vöruflokka innan sama sviðs.
Hvað hvetur þig mest áfram í þinni vinnu ?
Það er mjög gefandi að sjá og heyra einstaklinga taka framförum og ná árangri í málþroska og tjáningu. Það er oft árangur sem breytir miklu í lífi einstaklings og fjölskyldu hans og eykur sjálfstraust og lífsgæði. Framburðarefnið mitt er hluti af því að leggja mitt af mörkum til að foreldrar og skólar byrji snemma að undirbúa hljóðmyndun og hljóðkerfisþætti sem skipta miklu máli fyrir framburð og lestrarfærni. Efnið hefur jafnframt reynst vel fyrir fjölskyldur sem eru af erlendum uppruna og eru að læra íslensku. Þá hentar það mjög vel í allri sérkennslu.
Hvað er erfiðast í þessu ferli?
Það er mjög hvetjandi að fá jákvæð viðbrögð frá foreldrum og fagfólki, en að sama skapi er umhverfið erfitt þar sem mikill niðurskurður er hjá skólum og stofnunum sem ættu að eiga allt framburðarefnið ,,Lærum og leikum með hljóðin” til að nota í starfi með nemendum. Foreldrafélög, kvenfélög og óháð félagasamtök hafa þó komið til móts við skólana með myndarlegum hætti og er það vel.
Nýjar vörulínur og spennandi námstefna
Það eru fjórar vörulínur sem koma út á þessu ári og eru í fullum undirbúningi í hönnun og framleiðslu. Það er ótrúlega spennandi að sjá nýtt efni verða til og ég hef notið þess að vera með frábæra teiknara með mér, þau Höllu Sólveigu Þorgeirsdóttur og Búa Kristjánsson. Þann 23. september næstkomandi verð ég með námstefnu fyrir foreldra og fagfólk þar sem ég kynni frekar aðferðafræðina á bak við ,,Lærum og leikum með hljóðin”, kem með dæmi um notkun þess og kynni nýtt efni. Ég býð upp á spennandi dagskrá og frábær tilboð á efninu á þessum degi.
Annað sem þú vilt taka fram að lokum?
Það er mikilvægt að finna stuðning við verkefni á mínu sviði þar sem markvisst er verið að sameina reynslu og þekkingu sem byggir á rannsóknum og gagnreyndum aðferðum í talþjálfun barna. Það er mikil hvatning til að halda áfram og gera sífellt betur fyrir þennan mikilvæga hóp barna og aðstandenda þeirra. Ég mun leggja mitt af mörkum til að halda áfram að vinna vandað efni fyrir íslensk börn sem nýtist bæði heima fyrir og í skólastarfi með börnum.








