Fyrir hvað stendur þú? - Fréttir
9.8.2011
Fyrir hvað stendur þú?
Gay Pride gleðigangan var haldin í Reykjavík á laugardaginn. Þúsundir manna fylgdust með og samglöddust með
samborgurum sínum. Gleðilagið „ÉG er eins og ég er...“ hljómaði um bæinn og hvert sem litið var sá maður litskrúðugar fjölskyldur og einstaklinga með bros á vör.
Gleðigangan er orðin að sérstakri göngu til að fagna fjölbreytileikanum í samfélaginu okkar, og við fögnum því sérstaklega að við „ERUM EINS OG VIÐ ERUM“.
Ég lét ekki þessa sérstöku gleðigöngu fram hjá mér fara í gær. Þar sem ég stóð og fylgdist með göngunni silast niður Lækjargötuna fann ég fyrir sérstakri eftirvæntingu hjá sjálfri mér, eftirvæntingu fyrir „loka“ atriði göngunnar, þ.e. að fá að sjá einn sá þekktasta talsmann göngunnar, Pál Óskar Hjálmtýsson. „Palli er fyrir mér einstaklingur sem svo sannarlega ER ÞAÐ SEM HANN ER. Hann kemur til dyranna eins og hann er klæddur, hann er fylginn sér, getur á sinn einstaka máta komið sinni sérstöðu á framfæri og fengið með sinni einlægni fólk á öllum aldri til að fylgja sér“, hugsaði ég, þegar ég dansaði á staðnum við dúndur taktinn í tónlistinni sem kom frá GULLVAGNINUM hans Palla!
Þegar ég fór svo að velta því fyrir mér hvað það væri sem Páll Óskar stæði fyrir í mínum huga, hvað það væri sem gerði hann að því vörumerki sem hann er komu eftirfarandi atriði í hugann.
Fyrir mér er Páll Óskar:
- Einlægur – Hann talar út frá hjartanu, og þess vegna fer ég alltaf að hlusta!
- Skapandi – Hann semur tónlist sem kemur mér bæði til að dansa og tárast.
- Traustvekjandi – ég get alveg treyst því að sama hvað hann gerir,
það verður glamúr og gleði! - Fylginn sér – Skilaboðin hans eru skýr: „Vertu þú sjálfur“
- Kemur á sinn einstaka máta alltaf á óvart... en samt ekki!
Sérstaða Páls Óskars er í raun vörumerkið hans, einkenni hans. Við hin hrífumst að þessum einkennum, því sem hann stendur fyrir og það er það sem gerir hann að virtum og einstökum tónlistarmanni.
ÞÚ ERT VÖRUMERKI!
Það er ekki bara einhverjir einstakir aðilar úti í bæ sem hægt er að tala um sem vörumerki. Staðreyndin er sú að við erum ÖLL vörumerki! Ekkert okkar er eins, við (já þú líka!) ÖLL höfum okkar sérstöðu, eitthvað sem sker okkur frá öðrum.
Á alþjóðlegu þjálfunarstofunni BRANDit erum við m.a. að hjálpa þátttakendum við að finna og skerpa á sínu eigin vörumerki og hvernig það tengist viðkomandi starfi/fyrirtæki. Það eru forréttindi að fá að sjá skýra mynd af sér sjálfum skapast hjá þátttakendum, að ekki sé minnst að geta tjáð sig um sína sérstöðu af öryggi og festu.
Hvort sem þú ert með þinn eigin atvinnurekstur, ert í námi eða starfar hjá stórfyrirtæki, þá ert þú alltaf vörumerki! Í hvert skipti sem þú átt í einhverjum samskiptum við annað fólk gefur þú frá þér skilaboð um hver ÞÚ ert, fyrir hvað ÞÚ stendur, hver eru ÞÍN gildi?
Hafðu í huga, fólk gleymir oft því sem við gerum, man ekki það sem við sögðum, en það gleymir aldrei hvaða tilfinningu við gáfum frá okkur!
Með því að opna fyrir meðvitund þína og finna fyrir hverju þú stendur og byggja upp styrkleikana þína ertu að opna fyrir samfeldri gleðigöngu í þínu lífi!
Fyrir hvað stendur þú?
Rúna Magnúsdóttir
Stofnandi Connected-Women.com
Með stofnandi BRANDit
ACC Stjórnendamarkþjálfi ICF
www.RunaMagnus.com








