Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Samfélagslegur ávinningur frumkvöđla skiptir máli - Fréttir

17.8.2011

Samfélagslegur ávinningur frumkvöđla skiptir máli

Afhverju kjósa sumir einstaklingar að framkvæma viðskiptahugmyndir þar sem samfélagslegur ávinningur er meiri en fjárhagslegur ávinningur?  Hvaða þættir eru það sem ýta undir ákvörðun um samfélagslegt frumkvöðlastarf?

Allt til dagsins í dag hefur lítið verið rætt um samfélagslegt frumkvöðlastarf á Íslandi.  Hugtakið er nánast óþekkt en á sama tíma er umfang slíks frumkvöðlastarfs hérlendis umtalsvert og í raun með því hæsta sem gerist í heiminum þegar Ísland er borið saman við þær 54 þjóðir sem taka virkan þátt í alþjóðlegu GEM (Global Entreprenurial Montitor) samanburðarrannsókninni. Þessi rannsókn hefur hingað til náð að skilgreina nokkuð vel "hverjir" það eru sem eru samfélagslegir frumkvöðlar en lítið er enn vitað um afhverju þeir taka þá ákvörðun að gerast samfélagslegir frumkvöðlar.

Í rannsókn sem framkvæmd var af Árdísi Ármannsdóttur, núverandi markaðsstjóra Nýsköpunarstöðvar Íslands og þáverandi nemanda í meistaranámi við Viðskiptaháskólann í Árósum, var áhersla lögð á að greina þá lykilþætti sem hafa áhrif á ákvörðunina um samfélagslega frumkvöðlahegðun og orsakasambandið á milli þáttanna, annarra undirliggjandi þátta og endanlegrar ákvörðunar.

Tekin voru djúpviðtöl við fimm íslenska frumkvöðla sem valdir voru  úr sama úrtaki og notað var í GEM rannsókninni 2009. Niðurstöður rannsóknar gefa til kynna að mikill munur er á uppruna ákvörðunar háð því hvort um sé að ræða hugmyndir tengdar góðgerðarstarfi annars vegar og öðrum samfélagslegum hugmyndum hins vegar. Uppruna hugmynda sem tengdar eru góðgerðarstarfi má yfirleitt rekja til sjúkdóma eða sorglegra atburða sem átt hafa sér stað hjá frumkvöðlinum sjálfum eða í nærumhverfi hans. Góðgerðarsamtökin eru stofnuð í kringum þann sem átt hefur erfitt þar sem löngun til þess að þakka fyrir sýnda aðstoð og þjónustu eða löngunin í að finna lækingu eða lausnir er mikil.

Samkvæmt rannsókninni eru íslenskir frumkvöðlar, sem standa að baki annarra samfélagslegra hugmynda en góðgerðastarfa að framkvæma í takt við áhuga og þá yfirleitt áhuga sem rekja má til uppvaxtarára viðkomandi. Þessi áhugi hefur haft áhrif á það hvaða leið þessir aðilar hafa ákveðið að fara í lífinu, á menntun þeirra og starfsvettvang. Í flestum tilfellum hefur náin fyrirmynd í þeirra lífi hvetjandi áhrif á þá leið sem einstaklingarnir kjósa að fara í lífinu. Rannsóknin gefur til kynna, að á ákveðnum tímapunkti í lífi þessara frumkvöðla þegar þeir kalla sjálfir eftir breytingu eða ófyrirsjánleg breyting verður á þeirra lífi þá endurupplifa þessir samfélagslegu frumkvöðlar ánægjulegar áhugatengdar minningar eða upplifanir sem kveikja hugmyndir þeirra. Á sama tíma þá sjá þeir fyrir sér ákveðna stöðu í framtíðinni sem þeir vilja ná og er ósk þeirra að hugmyndin hafi jákvæð áhrif á samfélagið í heild sinni.

Samfélagsleg markmið og samfélagslegur tilgangur samfélagslegra frumkvöðla á Íslandi ristir djúpt og þá sér í lagi vegna mjög mikils áhuga á viðfangsefninu og kunnugleika við það samfélagslega vandamál eða áskorun sem um ræðir í hverju tilfelli fyrir sig og verið er að reyna að mæta í bland við mikla umhyggju fyrir samfélaginu í heild.

Lambert Academic Publishing hefur nú gefið út meistaraverkefni Árdísar í formi bókar og fæst hún meðal annars á Amazon. Bókin er gefin út á ensku - sjá nánar hér

(Tekið af heimasíðu Impru - www.impra.is)


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk