Námskeiđ í nýsköpun fyrir krakka ! - Fréttir
8.8.2011
Námskeiđ í nýsköpun fyrir krakka !
Dagana 8.-12. ágúst mun FAFU bjóða upp á námskeið í nýsköpun fyrir krakka á aldrinum 9-13 ára. Unnið verður með hugmyndafræði nýsköpunar og börnin aðstoðuð við að greina hugmyndir og tækifæri í nærumhverfi sínu og vinna með þær áfram. Krakkarnir munu allir klára grófar frumgerðir af hugmyndum sínum og nota til þess textíl, pappa og ýmis önnur hráefni.
Námskeiðið verður haldið í Toppstöðinni í Elliðaárdalnum og verður hluti námskeiðsins kenndur utandyra þar sem krökkunum gefst kostur á að leita að opnum og verðlausum efnivið utandyra ásamt því að leita innblásturs í náttúrunni.
Tilgangur námskeiðsins er ekki endilegar að fullvinna nothæfar frumgerðir heldur að kynna fyrir krökkum mikilvægi þess að undirbúa hugmyndir vel og gera tilraunir strax á hugmyndastigi til að finna mögulega galla sem þarf að leiðrétta eða sjá nýja hlið á hugmyndinni sem hjálpar þeim að þróa hana betur.
Námskeiðið verður kennt í tveimur hópum, annar frá 9-12 og hinn frá 13-16.
Verð: 15.000 kr. með efniskostnaði
Skráning á námskeiðið fer fram með því að senda tölvupóst á fafu@fafutoys.com með nafni barns og aldri ásamt nafni og símanúmeri forráðamanns. Vinsamlegast takið einnig fram hvort þið viljið skrá barnið fyrir hádegi eða eftir hádegi.








