Svanni - lánatryggingasjóđur kvenna - Fréttir
16.8.2011
Svanni - lánatryggingasjóđur kvenna
Hefur þú góða hugmynd sem þú vilt hrinda í framkvæmd? 
Í mars sl. var undirritað samkomulag um endurreisn Lánatryggingasjóðs kvenna, er var starfræktur milli 1998-2003, en verkefnið er liður í viðleitni stjórnvalda til að efla atvinnulíf og hvetja til nýsköpunar á Íslandi. Ennfremur hafa rannsóknir sýnt að konur eru síður tilbúnar að veðsetja sig og heimili sín en karlar og hefur það oft staðið verkefnum kvenna fyrir þrifum.
Sjóðurinn er í eigu velferðarráðuneytis, iðnaðarráðuneytis og Reykjavíkurborgar og er verkefnið til fjögurra ára.
Auglýst verður eftir umsóknum um ábyrgðartryggingar í september og verður þá hægt að sækja um ábyrgðartryggingu á heimasíðu sjóðsins sem er í vinnslu.
Svanni - lánatryggingasjóður kvenna veitir ábyrgðartryggingar til kvenna með góðar viðskiptahugmyndir. Sjóðurinn er í samstarfi við Landsbankann um lánafyrirgreiðslu. Eingöngu verkefni/fyrirtæki sem eru í meirihlutaeigu konu/kvenna og undir stjórn konu/kvenna geta sótt um tryggingu og gerð er krafa um að í verkefninu felist nýsköpun/nýnæmi að einhverju marki. Einnig er krafa um að líkur séu verulegar á að verkefnið/fyrirtækið leiði til aukinnar atvinnusköpunar kvenna.
Unnt er að sækja um ábyrgð vegna eftirtalinna þátta:
- Stofnkostnaðar
- Markaðskostnaðar
- Vöruþróunar
- Nýrra leiða í framleiðslu eða framsetningu vöru/þjónustu.
Ábyrgð skal ekki vera undir 1 milljónum króna og að jafnaði skal ábyrgð ekki fara yfir 5 milljónir króna. Stjórn er þó heimilt að afgreiða hærri ábyrgðir í undantekningartilvikum með hliðsjón af eðli og tegund umsókna.
Umsóknir
Afgreiðsla umsókna.
Umsækjandi fyllir út umsóknareyðublað á heimasíðunni og fer stjórn yfir umsóknir og leggur mat á þær. Þá eru hæfar umsóknir sendar til Landsbankans er metur lánshæfi umsækjenda út frá áhættumati og fjárhagsstöðu hans. Lánshæfar umsóknir fara því næst til stjórnar Lánatryggingasjóðs sem tekur ákvörðun um veitingu ábyrgða í samræmi við samþykktir sjóðsins og lánareglur þessar.
Í umsókn skulu koma fram upplýsingar um umsækjanda, greinargóð lýsing á verkefni/fyrirtæki, markmiðum þess og ávinningi, hverjir koma að umsókninni, samstarfsaðilar, viðskiptaáætlun (ítarleg fjárhags-, og framkvæmdaráætlun) og lýsing á fjármögnun og staðfesting fjármögnunaraðila ef þeir eru til staðar.
Umsóknir eru metnar út frá eftirfarandi þáttum: Lýsingu á viðskiptahugmynd, nýnæmi/nýsköpun hugmyndar, atvinnusköpun kvenna, verðmætasköpun/arðsemi, samkeppni, viðskiptaáætlun (fjárhags-, markaðs og framkvæmdaráætlun), fjármögnun, áhættumati og fjárhagsstöðu umsækjanda.
Ráðgjöf og eftirfylgni.
Ef lán og ábyrgð er samþykkt fer af stað ferli handleiðslu og ráðgjafar en lántaki skuldbindur sig til að fá ráðgjöf/handleiðslu um útfærslu hugmyndar sinnar. Verði misbrestur á framkvæmd þess getur stjórn í samráði við Landsbankann stöðvað frekari lánveitingar. Ennfremur skal lántaki skila ársskýrslu verkefnis/fyrirtækis fyrir lok apríl hvert ár sem ábyrgðin er í gildi. Stjórn er heimilt að óska eftir upplýsingum um framvindu og stöðu verkefnis/fyrirtækis hvenær sem er á tímabilinu.
Aðgerðir vegna vanskila.
Ef lántaki stendur ekki í skilum í þrjá mánuði eða lengur skal Landsbankinn gera stjórn sjóðsins viðvart og í framhaldinu skal gripið til venjubundinna vanefndaúrræða bankans.
Allar nánari upplýsingar veitir starfsmaður sjóðsins í síma 582-4914.
Einnig er hægt að senda fyrirspurnir í netfangið asdis.gudmundsdottir@vmst.is.








