Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Átak til atvinnusköpunar - Fréttir

23.8.2011

Átak til atvinnusköpunar

Iðnaðarráðuneytið auglýsir nú styrkina „Átak til atvinnusköpunar“ lausa til umsóknar. Átak til atvinnusköpunar veitir styrki til nýsköpunarverkefna og markaðsaðgerða starfandi frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtækja.

Markmiðið er að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum sem hlotið gætu frekari fjármögnaun sjóða og fjárfesta. Ennfremur að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða í frumkvöðla- og sprotafyrirtækjum.

Í umsókn þarf eftirfarandi að koma fram:

  • Skýr lýsing á verkefni og árangri þess
  • Greining á nýnæmi verkefnis
  • Greinargóðar kostnaðar- og verkáætlanir
  • Ítarleg lýsing á verkþáttum sem sótt er um styrki til.

Styrkir geta numið að hámarki 50% af heildarkostnaði verkefnis en ekki eru veittir styrkir til fjárfestinga s.s. í tækjum og búnaði.

Rafræn umsóknareyðublöð má finna á heimasíðunni www.nmi.is

Nánari upplýsingar og aðstoð má senda á netfangið johanna@nmi.is

Umsóknarfrestur er til og með 22.september og eru umsækjendur hvattir til að bíða ekki til síðasta dags með að sækja um vegna álags á umsóknarkerfi.


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk