Brautargengisnámskeið - Fréttir
29.8.2011
Brautargengisnámskeið
Næstu Brautargengisnámskeið hefjast 12.september í Reykjavík og 13.september á Akureyri.
Brautargengisnámskeið eru námskeið fyrir konur sem að hafa viðskiptahugmynd sem þær vilja vinna frekar með. Þar læra konur um stofnun og rekstur fyrirtækja og að koma hugmynd sinni á framfæri.
Hverjum er námskeiðið ætlað?
Brautargengi er námskeið fyrir konur sem vilja hrinda viðskiptahugmynd í framkvæmd og hefja eigin rekstur og fyrir konur sem eru í atvinnurekstri en vilja auka rekstrarþekkingu sína. Námskeiðið er sérsniðið fyrir konur sem hafa viðskiptahugmynd sem þær vilja hrinda í framkvæmd með nýju eða starfandi fyrirtæki.
Inntökuskilyrði
Meginskilyrði eru að þátttakandi hafi viðskiptahugmynd til að vinna með, sé að hefja rekstur eða sé nú þegar í rekstri og að þátttakandi skuldbindi sig til þess að vinna að gerð viðskiptaáætlunar sinnar í heimavinnu en gera má ráð fyrir að sá þáttur taki amk 10 klst. á viku.
Markmið
- Þátttakendur ljúki við vinnu að eigin viðskiptaáætlun
- Öðlist þekkingu á grundvallaratriðum við stofnun fyrirtækis
- Fái hagnýta þekkingu á þeim þáttum sem lúta að fyrirtækjarekstri s.s. markaðsmálum, fjármálum og stjórnun
- Þátttakendur fái tengsl við atvinnulífið í gegnum fyrirlesara, leiðbeinendur og aðra þátttakendur
Kennslufyrirkomulag
Námskeiðið byggist upp á fyrirlestrum, verkefnavinnu og heimavinnu en þátttakendur fá einnig handleiðslu hjá starfsmönnum Impru. Brautargengi er 75 tíma námskeið og kennt er einu sinni í viku í 4,5 tíma í senn, samtals í 15 vikur.
Meðal námsþátta er eftirfarandi:
- Markviss uppbygging þátttakenda
- Stefnumótun
- Stjórnun og starfsmannamál
- Markaðsmál
- Fjármál
- Tölvuvæðing og internetið
- Hagnýt atriði við stofnun og rekstur fyrirtækis
Innifalið
- Kennsla og leiðsögn
- Námsgögn
- Verkefnamappa
- Kaffi og meðlæti
- Handleiðsla
Nánari upplýsingar og skráning er á heimasíðunni www.nmi.is
Benda má á að ef áhugi er fyrir því að setja upp námskeið úti á landi þá má hafa samband við selma@nmi.is








