Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Ráđstefna um hönnun í Hörpu - Fréttir

19.8.2011

Ráđstefna um hönnun í Hörpu

Nýlega fór Apple hönnunarfyrirtækið upp fyrir Exxon olíurisann yfir verðmætustu fyrirtæki heims. Þó það hafi staldrað stutt á toppnum er það táknrænt fyrir þau straumhvörf sem nú eru að eiga sér stað og ber vitni um mikilvægi heildrænnar hönnunar.

Margar þjóðir telja skapandi greinar vera einn mikilvægasta vaxtarbroddinn í atvinnusköpun og samkeppnishæfni þjóða þar sem gæði og heildstæð framsetning skipta sífellt meira máli. Rannsóknir hafa sýnt að að fyrirtæki sem nýta hönnun í vöruþróun og nýsköpun vaxa hraðar og eru líklegri til að ná árangri á alþjóðlegum markaði.

Hönnun skiptir gríðarlegu máli í þróun í átt að sjálfbæru samfélagi og grænu hagkerfi þar sem unnið er á heildrænan hátt út frá umhverfis-, samfélags- og efnahagslegum þáttum.

Íslenski hönnunargeirinn hefur vaxið undanfarin ár en möguleikar hönnunar eru þó síður en svo fullnýttir. Víða leynast vannýtt tækifæri til vöruþróunar, nýsköpunar og þjónustuhönnunar og enn gætir þeirra skoðana að hönnun takmarkist við útlitslega þætti.

Fjölmargar þjóðir heims hafa mótað sér hönnunarstefnu og hafa Norðurlöndin verið þar í fremstu víglínu og náð góðum árangri - nú er komið að okkur!

Á ráðstefnunni „Nýr farvegur“, 26. ágúst 2011 í Hörpunni verður kafað dýpra í þessi málefni. Bæði innlendir og erlendir fyrirlesarar munu fjalla um gildi hönnunar frá ýmsum sjónarhornum. Ráðstefnan er opin öllum og fer fram á ensku. Skráning er hafin á  midi.is.

NÝR FARVEGUR – Fyrirlesarar:

  • Jan R. Stavik | hagfræðingur og framkvæmdastjóri norska hönnunarráðsins.
  • Elizabeth (Dori) Tunstall | prófessor við Swinburne háskólann í Melbourne og skipulagði mótun hönnunarstefnu Bandaríkjanna.
  • John Thackara | rithöfundur, fyrirlesari og ritstjóri hefur verið áhrifamikill í umræðunni um tengsl hönnunar við samfélag, umhverfi og efnahag síðan á áttunda áratugnum.
  • Auk þeirra verða kynnt vel heppnuð dæmi um beitingu hönnunarhugsunarháttarins við vöruþróun og verðmætasköpun.

(Tekið af heimasíðu Hönnunarmiðstöðvarinnar)


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk